Balthasar duglegur að drekka og mjög heitt
Hæ pæ,
það er varla að maður komist í að blogga fyrir annríki þessa dagana.
Leggja á brjóst aftur og aftur, drengurinn þarf að ná vökvanum sem hann svitnar, þetta er nú ekki eðlilegt hvað það er búið að vera gott veður um alla evrópu. Í fréttunum áðan var sagt að fyrir utan á Íslandi væri alls staðar steikjandi hiti. Þannig að 15 gráður í Reykjavík, sem er nú ekki lítið!!! eru mjög heillandi þessa dagana. Það kólnar ekki á nóttunni, rigningar sem búið er að spá koma ekki og það er allt að skrælna. Ósonlagið á hættulegu stigi og guð má vita hvað.
En við höfum það ágætt hér inni þrátt fyrir að það sé líka orðið mjög heitt og þungt loftið. Við opnum allt í gegn á kvöldin en meira segja um 22 er enn 27 stiga hiti úti þannig að það er ekki mikil bót í máli.
Nína er dugleg að fara í útisund og ég er mjög ánægð með það. Hún er líka dugleg að hjálpa hér heima en það er svo leiðinlegt fyrir hana þegar hann sefur þannig að þegar það kemur eitt múkk þá er mín komin og til í að taka herramanninn upp og skipta á honum eða spjalla aðeins.
Við höfum það annars gott, næturnar eru misjafnar en við höfum ekkert að kvarta yfir. Svo er verið að plana 35 ára afmæli Alex á sunnud. Manfred og co ætla að kíkja þannig að það þarf eitthvað að skipuleggja hvað á að bjóða upp á svona. Alex vill nú ekki halda neina veislu en það getur samt verið að það kíki einhverjir nágrannar við í freyðivínsglas þannig að það er eins gott að vera með kalda flösku í ísskápnum...


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home