Fótboltinn og lífið
Þetta er nú meira lífið á manni þessa dagana. Alveg steikjandi hiti í landinu og sól og maður bara reynir að finna stað þar sem hægt er að halda það út. Ég er kannski sérlega næm fyrir þessum hita í því ástandi sem ég er í, það er hugsanlegt, því annars hefur þessi hiti ekki verið að angra mig svona. Ég vaknaði í morgun kl.6 til að opna allt í gegn og fá smá kælingu inn í húsið, þá voru það komnar 20 gráður þannig að mikil kæling var nú ekki fengin í því að andskotast svona snemma á fætur.
Nína var allann gærdaginn að hoppa í og úr litlu plastlauginni sem við erum með í garðinum til að kæla sig og eftir að hafa tínt gríðarlegt magn af kirsuberjum og innbirgt þá drifu þær vinkonurnar sig, hún og Móna í bíó. Þar væri amk kalt! Ef þetta eru ekki rök þá veit ég ekki hvað!!! Um kvöldið var hún svo alveg búin á því eftir alla sólina og hitann en skildi ekkert í því að hún þyrfti að fara að sofa "Það væri nú einu sinni skólafrí". Já þetta er stundum skrítið líf.
Svo er það fótboltinn, ansi verður þetta spennandi í kvöld, það væri auðvitað óskandi að Þjóðverjar vinni leikinn en Ítalir eru ekki auðveldir mótherjar. Reyndar leiðinlegt hvað Ítalarnir eru búnir að vera að gera mál úr þessu með hann Frings, hann spilar amk ekki með í kvöld, bara að það verði ekki mikill missir fyrir þýska liðið. Ég spái vissulega Þjóðverjum sigri og vona að Frakkar mæti þeim í úrslitaleiknum. Þetta kemur allt í ljós fyrr en seinna en ég óska öllum góðrar skemmtunnar í kvöld við að horfa á leikinn.


4 Comments:
Ég trúi því að þú sért að kafna Helga mín úr hita. Ég var svo heppinn í fyrrasumar að það var ekki eins hlýtt þegar ég var í sama ástandi og þú ert í núna. Við erum alveg að kafna hérna í Aarhus úr hita og ætlum að fjárfesta okkur í viftum út um allt hús.
já það er svo sannarlega spennandi leikur í kvöld, held auðvitað með þjóðverjum þar sem rennur þýskt blóð í æðum mér.
kær kveðja
Christel
Já það er satt Christel þetta er ekki mjög auðvelt að vera með öll þessi aukakíló og í hitanum. En við erum svo heppin að vera með svona gluggahlífðarrúllugardínur eða hvað maður á að kalla það utan á gluggunum sem við getum sett niður og þá er alveg almyrkvað inni hjá okkur og helst alveg merkilega kalt. Maður þarf bara að passa þegar það er opnað út og svona að hitinn nái ekki í of miklum mæli að laumast inn.
En viftur eru líka mjög gagnlegar, bara til að fá loft.
Áfram Þýskaland......
Kannski maður haldi með Þýskalandi á eftir......bara svona fyrir ykkur og Daniel;o) Þetta verður annars fyrsti HM-leikurinn sem ég sé þetta árið, hef einhvernveginn ekki haft mikinn áhuga núna:o/ enda mikið annað að hugsa þessa dagana.....;o)
Hafðu það gott Helga mín í hitanum;)
Nice idea with this site its better than most of the rubbish I come across.
»
Skrifa ummæli
<< Home