Húrrahhhh húrra
Nína er loksins komin heim þessi elska. Hún var mjög ánægð með vikuna á reiðnámskeiðinu og hafði gaman af öllu sem þau gerðu þar og naut þess að vera með Mónu vinkonu sinni. Við fórum og kíktum á "hennar" hest og litlu kisurnar sem voru á bænum og fengum okkur svo íspinna til að kæla aðeins vit okkar en það var alveg ótrúleg molla í dag, rúmlega 30 gráður og kælingin í bílnum ónýt. Hrikalegt vesen en það verður ekki gert við það, það borgar sig ekki og nýr bíll kemur ekki til greina þar sem maður er að fara í svaka framkvæmdir á komandi ári. ÞEgar við komum svo heim þá var litla laugin drifin út í garð og vatn í hana til að kæla prinsessuna, hún sprautaði á pabba sinn og hann á hana. Svo var kíkt á leikinn og grillað í hálfleik gómsæt steik, alveg ómissandi þegar veðrið er svona. Nína er að gera sig klára, hún er alveg búin á því, sagðist ekki hafa sofið mjög vel í átta manna herberginu þar sem ein daman gaf frá sér undarleg hljóð á nóttunni, Nína sagist hafa vaknað fimm sinnum á hverri nóttu. Það er nú varla á mann leggjandi þegar maður er 11 ára og á reiðnámskeiði, það þýðir á fullu allan daginn út og inn og meira segja þurfti að fara í sturtu á hverjum degi!!!
Best að kíkja á hana og fara með faðirvorið kannski saman, hana hlakkaði til að sofa í sínu rúmi í nótt, það er nú gaman. Góða helgi kæru félagar og hafið gaman af leiknum sem er að byrja,,,,, Brasilía á móti Frakklandi, þori varla að spá nokkru um þennan leik, hefði eiginlega haldið að England mundi til dæmis vinna Portúgalana því mér finnst þeir svo grófir en það fór á annan veg. Ég verð köld og spái Frökkum sigur!!! Sjáum hvernig fer.


4 Comments:
Til hamingju með að vera búin að endurheimta Nínu aftur;o)
Takkk fyrir það, bara endalaus gleði núna á heimilinu. Í dag í góða veðrinu í garðinum í badminton, í litlu lauginni, að hvíla sig í skugganum, borða ís og melónu og drekka ískaffi og leggja sig, bara njóta lífsins.
Ohh....ég öfunda ykkur rosalega...sumarið er ekki enn komið á Íslandi. Núna er bara skítakuldi og rok....rigningin er líka væntanleg í dag!!!!
En þetta er kannski ágætt þar sem að við erum á fullu að pakka;o)
Njótið góða veðursins fyrir okkur í leiðinni;o)
I like it! Good job. Go on.
»
Skrifa ummæli
<< Home