Til hamingju Ítalía
Þetta var nú meiri heppnin í ítölunum í gær. Alveg hefði ég óskað ÞJóðverjum sigri en svona getur þetta verið í boltanum. Það þekkja þeir sem hafa fylgst með ÍA í sumar!!! Ekki það að ég sé að skjóta á neinn.... Alex var vitanlega mjög svekktur eins og allir leikmenn og þjálfarar liðsins. Klinsmann sagði að Ítalir hefðu bara verið meira kúl en Þjóðverjar og notfært sér sín marktækifæri, sem ÞJóðverjar hefðu ekki gert! Vel til orða tekið.
Umfjöllun hefur verið jákvæð, bæði liðin voru góð og hefðu bæði átt skilið að vinna en svona er þetta.
Ég óska Frökkum sigri í kvöld því það væri ömurlegt að þurfa að horfa á Ítali spila á móti Portúgölum, ekkert nema leikaraskapur og tuddaháttur, leiðinlegur bolti svoleiðis. Frakkarnir eru með skemmtilegt spil að mínu mati og eiga alveg að geta tekið þetta í kvöld.
Við mæðgur fórum í útisund í dag með Mónu, það var vel yfir 30 og ekkert vit í öðru en að fara þangað sem hægt var að kæla sig vel. Frábært að hafa svona nýtt útisund í bænum, við erum ekki nema 5 mín á hjóli þangað. BAra verst að það eru engin skuggapláss þannig að maður þarf að vera með strandskel eða sólhlíf með sér, sem við vorum með okkur til varnar.
Svana eignaðist dreng á föstudaginn, til hamingju með það Svana, hlakka til að kíkja á barnalandssíðuna þína.... og skoða myndir af prinsinum og nýbökuðu foreldrunum.


3 Comments:
Ætla rétt að vona að þú farir varlega á hjólinu Helga mín, man samt að mér þótti ósköp gott að hjóla með bumbuna! Og ekkert vit í öðru en að kæla sig aðeins í þessum hita, fór einmitt á ströndina í dag í smá busl!
Hvenær er svo bumbubúinn væntanlegur?
Hitakveðjur, Gunnur
Very pretty design! Keep up the good work. Thanks.
»
Your website has a useful information for beginners like me.
»
Skrifa ummæli
<< Home