þriðjudagur, september 05, 2006

Lífið komið í fastar skorður

Eða svona hérumbil, hann Balthasar veldur truflun á nætursvefni en sú truflun er velkomin svo lengi sem þessi dúlla vill koma á brjóst hjá mömmu vegna svengdar. Einu sinni vaknaði hann til að æla og sofnaði svo aftur og svaf í fjóra tíma, skrítin þessi börn stundum.

Nína er kærkomin nágranni í rúminu þessa dagana þar sem Alex er ekki heima. Hann er að setja upp sýningu í Frankfurt og verður í 8 daga í burtu. Við erum nú svo góð saman hér heima að við björgum okkur. Nína og Balthasar bíða spennt eftir því að pabbi komin heim til að geta farið saman í sund aftur. Ég bíð auðvitað líka spennt eftir að fá minn heittelskaða eiginmann heim eftir fjarveruna. Maður er alveg orðinn svakalega óvanur því að hann sé ekki heima þar sem hann hefur verið svo mikið heima síðan Balthasar fæddist, en það eru komnar átta vikur eftir tvo daga, hugsa sér. Bráðum er svo tveggja mánaða afmæli Balthasar, spurning hvort maður haldi ekki bara stórveislu, nei smá grín hérna. Ég er samt góð í að finna tækifæri til að baka köku þessa dagana, spurning hvort maður baki ekki köku af tilefninu.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

2 mánaða þetta er aldeilis fljótt að líða.

4:32 e.h.  
Blogger Bippi said...

Það er ekki spurning Helga mín...þú skellir í eina köku;)

8:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú hægt að skella í form við minna tilefni en þetta!

1:22 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Skelltu í köku Helga mín eða kökur, notaðu tækifærið á meðan þú nennir.

Það er hægt að frysta eitthvað af þeim og koma með í flotta bústaðinn ;)

Ég skil vel að þú bíðir spennt eftir þínum heittelskaða, þetta er svo löng fjarvera. Bestu kveðjur frá ástarleikmanni mínum.

11:55 f.h.  
Blogger Familie Eck said...

Hæ Helga,
það er gaman að fá köku á afmælinu hans Balthasars og fara svo í fótasnýrtingu eða öfugt...
Samt er nú ótrúlega gaman í þessari borg. Fór að skogga í gær fram hjá öll þessum túrista stöðum og mér fannst þetta frábært.
IRONMAN FRANKFURT 2008!!!
Kveðjur Alex

11:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Líst vel á að þú skellir þér loksins í fótsnyrtingu, það verður gott að fá þig heim. Já þetta með Ironman, þá hefur nú nú eitthvað til að stefna að. Þá kem ég og hjúkra þér eftir rúma ellefu tíma keppnina, gaman, gaman....

Í sambandi við baksturinn þá væri ég alveg til í uppástungur, þarf að fara að taka nýjar kökur inn hjá mér.

Kveðja
Helga

12:03 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fínt að baka eplaköku, hún er svo holl;)
Kv. Rannveig

3:01 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters