fimmtudagur, ágúst 31, 2006

æði skæði að hafa ömmu Siggu og Þórð í heimsókn

Það er búið að vera svo gaman hjá okkur. Við erum búin að láta skíra prinsinn okkar og hafa það mjög notarlegt saman heima, fara til Frankfurt og heimsækja þýska hluta fjölskyldunnar og við erum búin að versla ýmsa nytsamlega heimilishluti ásamt öðru. Borða góðan mat og tala mikið saman og hlægja af setningum sem varla er hægt að endurtaka....

Við spiluðum líka Ligretto saman en það er örugglega eitt af fáum spilum sem ég hef gefið innan fjölskyldunnar og hefur varla verið notað, eða bara aldrei verið notað, Óli?? En þetta er mjög skemmtilegt spil og er fyrir 2-4 leikmenn og minnir einna helst á kleppara. Við vorum alveg komin í ham í þessu spili eitt kvöldið hér heima, sumir voru fljótari en aðrir og það er bara eins og gerist. Maður er kannski misfljótur, það fer eftir því hvað verið er að taka sér fyrir hendur.

Í gær var svo seinasta kvöldið okkar saman og þá pöntuðum við þetta fína hús fyrir okkur og ömmu Lillu og fylgdarmann 7.-14.okt. Þetta sumarhús er á Sjállandi, í Vellerup sem er mjög stutt frá Roskille og um klst.keyrsla frá Kaupmannahöfn. Alveg æðislegt hús og það verður gaman að hittast öll saman. Svo er verið að gæla við það að halda jólin dönsk þetta árið en það kemur betur í ljós síðar! Þannig að það var ekki eins sorglegt að kveðjast þar sem við erum komin með ákveðna dagsetningu hvenær við ætlum að hittast næst. Balthasar brosti svo sætt rétt áður en amma fór, alveg bræddi hjartað, þetta krútt, það er bara svo yndislegt þegar þau eru farin að brosa til mans þessar dúllur.

Mamma og Þórður sáu um matinn í gærkvöldi og það var ekki að spyrja að því, svoleiðis háveislumatur að þeirra lagi, mmmmm... Svo sátum við lengi frameftir og ákkúrat þegar ég fór svo upp í rúm þá var stubburinn orðinn þyrstur, hehe... en það var nú bara gott því hann var búinn að sofa í rúma fjóra tíma og svo var bara farið aftur að sofa....

4 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Já það var yndislegt að vera hjá ykkur, takk fyrir okkur :)

Þórður biður að heilsa, hann er að fara í gegnum blaðabunkann sem beið okkar þegar við komum. Þetta er að mestu leiti ruslpóstur sem fer því beint í rulsið.

Bestu kveðjur frá Köben :)

8:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með skírnina-sýnist þetta hafa verið mjög kósý hjá ykkur, alla vega af myndunum að dæma. Kv. Hildur

11:33 f.h.  
Blogger Sigríður Dögg Auðunsdóttir said...

Hæ elsku Helga,
til hamingju með soninn og skírnina. Hann er gullfallegur drengurinn. Diljá biður voða vel að heilsa Nínu, gömlu vinkonu sinni, og Stefán líka. Ég slæ nú á þráðinn til þín fljótlega og fæ að heyra betur allt sem á daga ykkar hefur drifið síðan ég hitti þig síðast. Knús og kossar frá Íslandi, Sigga Dögg

4:50 e.h.  
Blogger Helga said...

Skírnin var mjög skemmtileg, sérstaklega að þetta hafi tekist í guðs grænni náttúrunni og að mamma og Þórður hafi verið viðstödd.

Mamma takk sömuleiðis fyrir komuna, vonandi verðið þið dugleg að heimsækja okkur!!!

Sigga Dögg það verður gaman að heyra í þér.

8:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters