fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Allir að blogga á sama tíma

Hæ hæ það er nú meira hvað það er gaman að fá mömmu sína í heimsókn. Algjör draumur. Ég er búin að fara til kjallaralæknisins,,,, og fara í klippingu og gera hluti sem gott er að gera þegar amman passar nýjasta fjölskyldumeðliminn. Á morgun er stefnan tekin á grillveislu í skólanum hjá Nínu og svo verður bara lagt í langferðalag, já skírnin og það. Það verður gaman að fara í fyrstu langferðina með hann Balthasar.

Nú sitjum við hér í stofunni, búin að borða og fá okkur æris í eftirrétt og það eru þrjár tölvur í gangi á, ja segjum 10 fermetrum, Alex í sjónvarpinu í tölvunni, mamma í sinni ferðatölvu og ég í okkar ferðatölvu. Gaman!!!! að vera saman ekki satt, en maður verður nú að updeita sig fyrir ykkur elskurnar, eins og maður hugsi ekki til ykkar....

Biðjum að heilsa í bili.....

p.s. bendi á nýjar myndir á barnalandi

5 Comments:

Blogger Rokkarinn said...

Krúsí!!! Jæja... það fer nú að koma að því að þú fáir að halda á ömmubarni sem er yngra en mánaðar-plús gamalt... Nei, Karen er ekki ólétt, en það hlýtur bara að fara koma að því að þú fáir 'glænýtt' ömmubarn í hendurnar... heldur þú það ekki?

12:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Veist þú eitthvað sem ég veit ekki Óli minn???

12:05 e.h.  
Blogger Bippi said...

Gangi ykkur vel um helgina. Það er fínt að æfa Balthasar að vera í bíl áður en að þið leggið í langferðina til Danmerkur;o)

12:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Flottar myndir, ertu búin að fara í klippingu á myndinni sem þið mæðginin eruð að drekka??

Hafið það gott öll sömul.
Bestu kveðjur
Þóra

3:24 e.h.  
Blogger Helga said...

já Þóra mín, ég þarf að hafa mig aðeins til og gera mig sæta áður en ég set hér inn nýju klippinguna. En ég er rosalega ánægð með hana....

Heiðrún, já það verður gaman að sjá hvernig hann verður í langferðinni. Við erum búin að fá lánaðan bíl í vinnunni hans Alex þannig að við förum bara á einum bíl.

Inga við hljótum að finna tíma, kannski eftir rúma viku eða???
bk
Helga

4:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters