Hæ hæ þá er Alex farin.... Já helgarnar eru of fljótar að líða að mínu mati. Hann Alex fór með lest í dag því ég verð að hafa bílinn og hann þurfti að vera mættur 4:50 algjörlega ómannúðlegur tími ég sver það. En hann vaknaði og ég líka til að keyra hann út á lestarstöð. Maður fer bara fyrr að sofa í dag.
Við borðuðum þetta fína læri í gær með vinum okkar Pirjo og Martin, Alex eldaði og úrbeinaði lærið og setti svo saxaðann hvítlauk, salt, pipar og rósmarin inní og lokaði svo lærinu. Lét þetta vera í í 3 tíma áður en hann byrjaði að elda það og mmmm þetta var svo mikið gúmmilaði. Íslenskt lambakjöt er einstakt, þetta var læri sem mamma kom með þegar þau komu fyrir jólin. Karlinn sem við leigjum hjá er alltaf jafn hissa á hvað þetta er svakalega stórt þegar ég fæ að geyma þetta hjá þeim í frystikistunni. En ég á eitt eftir og það verður líka geymt fyrir eitthvað sérstakt tækifæri.
Nína fer í síðasta flaututímann sinn í dag, ég held að hana hlakki alveg svakalega til að hætta.... en hún ætlar að byrja á fiðlu næsta haust í Coesfeld. Vonandi gengur það eftir, mér finnst svo frábært þegar börn, krakkar, unglingar og fullorðnir eru í músík. Ég sé mjög eftir því að hafa hætt á píanó. En maður lifir sjálfan sig víst ekki aftur í gegnum börnin sín ef þið skiljið hvað ég á við. Þau verða líka að vilja, ekki nóg að foreldrarnir vilja.
Á morgun ætla ég að láta kíkja á bílinn, það lekur olía ..... omg og svo þarf að kíkja á bremsurnar, já það er ansi mikill munur hvort maður fer 50 km á viku eða 400 km eins og Alex gerir þegar hann fer í vinnu.
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
mánudagur, janúar 26, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home