þriðjudagur, júní 28, 2005

Amma Lilla

Kemur á morgun og verður í tíu daga. Það verður gaman að fá hana í heimsókn. Ég er búin að vera aðeins að taka til og færa hluti fyrir komu hennar. Alex sækir hana á flugvöllinn. Hún kemur beint í Tupperware partý hjá mér, gaman finnst ykkur ekki???

Ég skil ekki hvaða rugl þetta er með bloggið, fyrst kemur ekki neitt lengi lengi... hvað er að gerast.

Þóra systir var að kaupa sér rúm í betra bak og hefur orðið fyrir miklum óþægindum og veseni. Hefur einhver reynslu í svona fúskara viðskiptum? Fyrst keypti hún rúm sem var með brúnan blett í??? Svo kemur ekki rúmgaflinn sem hún pantaði... og þeir eru bara með engin svör. Hún vill fá endurgreitt og skila rúminu því svona er auðvitað fyrir neðan allar hellur finnst ykkur ekki líka. Ekki eru þetta gefins vörur hjá þeim í búðinni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters