Brúðkaup, nafnagjöf og útskrift
Já það er nóg að gera í vinahópnum.
Anna Sigga og Ragnar Stefán nefndu stúlkuna sína, sem fæddist á föstudeginum langa, þann 17.júní Heklu. Þannig að nú eru tvær litlar dömur sem ég þekki með nafnið Hekla, Heiðrúnar dóttir líka, fallegt nafn. Til hamingju báðar tvær.
Mjöll Barkar var að útskrifast sem pedagoge í Danmörku á föstudaginn. Til hamingju.
Sigga Erla, hjúkka og Guðmundur ektamaður hennar eru að ganga að altarinu í dag. Eftir langan tíma, hátt í tíu ár, ákváðu þau loks að láta slag standa. Það á eftir að verða banastuð hjá þeim ef ég þekki þau og þeirra fólk rétt. Ekki sakar að Óli bróðir og kunningi hans halda uppi fjörinu eftir mat og ræður langt fram á nótt. Ég á eftir að vera með þeim í huga og ég hlakka til að sjá myndirnar sem Óli ætlar að taka. Kannski tvær eða eitthvað, Óli er það ekki? Svo skoðar maður vitanlega brúðkaupsalbúmið, það er nú fastur liður.
Já og ég er að vinna og það eru þrúgandi 26 gráður. Mjög hátt rakastig og ekki skemmtilegt andrúmsloft. Það er orðið svo heitt inni hjá okkur þrátt fyrir að allt sé fyrir gluggunum (þá á ég við rúllugluggahlífarnar sem eru utaná gluggunum og í nánast hverju einasta húsi í Þýskalandi) og varla opinn gluggi. Það kólnar ekki einu sinni almennilega á nóttunni. Við bíðum örvæntingafull eftir rigningu svo að gróðurinn fái smá meira en það sem maður tímir í hann af vatni. Rigningin færir alltaf vissann ferskleika með sér, það kólnar aðeins andrúmsloftið og hressir.
góða helgi til ykkar og góða skemmtun hvar sem þið eruð, hvort sem er í tjaldútileigu (Þórður og mamma), í barnaafmæli og skírn (Þóra), í brúðkaupi (margir, margir) eða bara heima í rólegheitunum að njóta þess að vera á lífi ( margir vonandi???)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home