fimmtudagur, júní 23, 2005

Íþrótta-skólamót

Íþróttamót var haldið í skólanum hjá Nínu á þriðjudag. Í skólanum eru bara 1-4 bekkur og í hverjum árgangi voru mynduð 10 hópar sem kepptu saman í ca 12 stöðvum. Mótið var úti, í 25 stiga hita en sem betur fer var skýjað. Það var gaman að sjá hve krakkarnir hafa gaman af svona lögðuðu. Að keppa saman og reyna að ná sem besta hópárangrinum. Auðvitað getur svona lagað farið úr böndunum en það var gaman hjá þeim. Allir voru renn sveittir og rauðir í framan, fyrir svona lagað líka of heitt. En það sem gaman var, var að nokkrum dögum áður fengu krakkarnir miða með sér heim þar sem hægt var að krossa við hvað maður vildi koma með á hlaðborð. Margir foreldrar komu svo með eitthvað, niðursneytt grænmeti, melónu í bitum, kirsuber, smurt rúnstykki og eitthvað annað. Þetta hafði það að verkum að það skapaðist svo skemmtileg stemming að fara að hlaðborðinu á milli stöðva og grípa eitthvað með og borða saman.

Þegar við komum heim rétt fyrir eitt, vorum við alveg búnar á því. Ég var að hjálpa og hafði gaman af því. Ég þurfti að leggja mig, hehe, svosem ekki neitt nýtt.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters