mánudagur, ágúst 22, 2005

Trúin á það góða í manneskjunni

Ég hætti aldrei að trúa á það góða í manneskjunni. Það getur verið að ýmsar aðstæður bjóði upp á að fólk sýni ekki á sér sína réttu hlið. Til dæmis í stressi, þegar maður hefur verið skammaður, þegar manni finnst vera brotið á sér eða á einhvern annan hátt farið illa með mann. Stundum treystir maður sér ekki til að vera maður sjálfur. Það er líka eðlilegt í sumum aðstæðum. En þegar maður sjálfur á bágt og brýtur á öðrum finnst mér óþarfi. Ómannlegt finnst mér að þora ekki að vera maður sjálfur, sama hvað á stendur en það er til fólk sem vill ekki sýna að það geri mistök og bregðist á einhvern hátt.

Ég er búin að vera að velta fyrir mér þessu með einhvern málshátt eða orðatiltæki sem er á þessa leið: ,,Hver er sinnar gæfu smiður". Hvað er átt við með þessu? Vissulega hefur sýn okkar á hlutina mikinn þátt í því hvernig við metum það sem við göngum í gegnum. En mér sýnist sumir einfaldlega lenda í meiru en aðrir. Getur það verið? Er því misskipt? Hvernig á maður að skilja þetta líf. Ég kristin og trúi á guð. Ég trúi því að það sé líf eftir þetta líf og ég er þakklát fyrir það að trúa. Ég er þakklát fyrir það að Nína trúir líka. Kannski er þetta samfélögum okkar vestræna lífs til góða, að við trúum. Þannig að við göngum ekki hvert okkar berserksgang um götur og skjótum fólk. Að við séum góð við nágranna, foreldra og annað fólk í kring um okkur. Auðvitað er þetta bara hagsýni kirkju og samfélags. Skrýtið að bæjarskrifstofur séu ekki staðsettar í kirkjum, það væri þá meiri ásókn og meiri nýting á húsnæði. Ekki það að ég sé bitur eða eitthvað en ég er mikið aðhugsa um að verða heppnari núna, það er héreftir....ykkur er velkomið að verða það líka, það liggur í ykkar höndum! Gangi ykkur vel.

3 Comments:

Blogger Sigga said...

Mér finnst það alveg ótrúlegt að sumir eru alltaf að lenda í einhverju á meðan aðrir lenda aldrei í neinu.
Hefur þetta kannski eitthvað með karakter fólks að gera eða er það bara þannig að Guð leggi bara á fólk það sem það þolir. Hinir sem lenda þá aldrei í neinu myndu kannski ekki þola það sem aðrir hafa lent í. Æi ég vona að þú skiljir hvað ég er að fara. Annars hef ég ekki talið mig trúaða manneskju...en kannski hefur bara aldrei reynt á það.

10:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

"Kannski er þetta samfélögum okkar vestræna lífs til góða, að við trúum. Þannig að við göngum ekki hvert okkar berserksgang um götur og skjótum fólk."

Í sögulegu samhengi held ég að við hinir "góðu" kristnu menn séum lítt betri.
Einnig er spurning hvort heimurinn væri betri ef við lærðum að virða aðra mennigarheima í staðin fyrir að vilja breyta þeim og gera eins og okkar.

En afhverju sumir lenda í meiru en aðrir, ekki hugmynd!!

Kv. Lú

11:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það hafa nú mörg lífin verið tekin bara út af trúmálum.......ég held við ættum frekar að líta hvort á annað sem jafngildar manneskjur hvort sem þú trúir á Guð, Allah eða hvað þetta nú allt heitir.

...kallinn minn er allavega helv... góður kall þótt svo að hann trúi ekki.......sonur minn og dóttir eru heldur ekki verri en önnur börn þó svo að þau hafi ekki hlotið kristilega skírn og þau eiga örugglega eftir að plumma sig fínt út í lífinu....

Af hverju er fólk að drepa hvort annað? Af hverju er til eyðni? Af hverju eru sumir heimilislausir ef Guð er svona góður?

Maður bara spyr sig..........:=/

3:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters