laugardagur, september 24, 2005

Spennandi dagur

Mamma og Þórður fóru í Þórsmörk í dag, mamma er að fara í fyrsta sinn á æfi sinni þangað. Ohh hvað það á vonandi eftir að vera gaman hjá þeim. Starfsfólk Brekkubæjarskóla er að fara saman, bara að veðrið spili með. Reyndar enginn gítar með í för en það ætti samt ekki að koma að sök. Ég spillti svolítið fyrir ferðarskapinu í gær þegar ég sagði að klósettin væru fyrir utan húsið! Það endaði svo með því að mamma sagði, Helga það er nú svo langt síðan þú fórst seinast, kannski er búið að breyta því. Já mamma, örugglega satt hjá þér.... En það er samt líka stemming, að fara út á klóið, í kannski rigningu og myrkri. Upplifun, hún á eftir að dýrka þetta.

Ég er á námskeiði í skólanum, um notkun smáskammtalyfja í bráðatilfellum. Nú getum maður þá farið að gera eitthvað almennilegt í þessum náttúrulækningapakka. Þannig að ef þið eruð með kvef, meiðsli eða annað bráðakeis, þá hafið þið samband og útskýrið nákvæmlega hvernig einkenni þið eruð með og tilfinningar og andlega líðan og ég get hjálpað ykkur. Ég þarf bara að kynna mér hvernig það er með globulis, hvort það er hægt að kaupa það á Íslandi í apóteki eða hvort ég þarf að fara að flytja það inn til landsins! Þetta var svooo skemmtilegt og ég get ekki beðið eftir því að læra restina í þessum merkilegu fræðum. Ég er dolfallin yfir þessu. Ég ætla að drífa í því að fara sjálf og athuga hvað er mitt smáskammtalyf!

Nína er orðin hress núna loksins, hún er búin að vera með pabba sínum í allan dag, bara inni að leika í playmó og taka til og dunda sér. Reyndar fór hún í göngutúr með Lilly, sem er hundur nágrannanna, þau eru frekar gömul og þakklát þegar ´Nína kemur og fer í göngutúr með Lilly sem er líka glöð því Nína kemur alltaf með hundanammi með sér, híhí. Sjáið þið hana ekki í anda, hún er svo dýrasjúk og skilur ekki af hverju hún má ekki fá eitthvað dýr. Ég er nú ekki sérlega góð mamma á því sviði. Hún mundi án efa standa sig rosa vel í að hugsa um dýrið, ekki spurning, bera ábyrgð og allt það. Kannski maður ættti að reyna að tuska sjálfan sig aðeins til varðandi þetta atriði.

Alex er búinn að vera svaka duglegur að taka til og henda í dag. Ég er alltaf svo hrædd um að eitthvað "mikilvægt" fari í ruslið þegar hann tekur svona rassíur, ég á það nefninlega til að safna öllu sem ég kemst nálægt. Maður gæti nú þurft einhverntíma á því að halda. Til dæmis sá ég að hann henti floppí diskahulstri sem ég er búin að geyma núna í fimm ár. Ég hef á þeim tíma ekki í eitt sinn haft not fyrir það en maður veit aldrei! Leit á eftir bleika fallega hulstrinu með tár í augunum og ákvað að leyfa því að liggja. Svo henti hann pínku litlum poka sem var tala í, tala sem fylgdi jakka sem ég er búin að setja niður í geymslu, ég tók það ekki heldur upp. En það sem ég tók upp úr ruslinu var bæklingur um raftannbursta sem er örugglega hætt að selja, hann er svo gamall, því ég er enn að velta fyrir mér hvort ég eigi að kaupa svoleiðis, og eitthvað álíka dót sem óþarfi er að nefna hér.

Jæja ég læt þetta duga í dag, við ætlum að fara í göngutúr niður í bæ og kaupa okkur ítalskan ís í góða veðrinu en í dag voru yfir 25 stig víða og sól.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sniðugt að þú ert að tala um svona hreinsun. Ég var einmitt að spurjast fyrir um hvar maður gæti farið með föt sem eru lítið notuð eða mikið og gefið.. Mér datt í hug mæðrastyrksnefnd eða rauði krossinn en það er víst hægt að fara með það í sorpu þaðan sem rauði krossinn hirðir og gerir við ef þörf er á.

Ég ætla nefnilega að fara að hreinsa til í skápunum. Það er nefnilega algjör staðreynd að þegar að maður kaupir sér nýja flík, þá hættir maður að nota aðra. Þannig að ég ætla nú að fara að hreinsa út. Ef hugsað er út í það.. að ég kaupi að meðaltali 2 flíkur á mánuði.. þá safnast þetta ansi mikið upp!! Jii minn eini.

Hins vegar þarf maður að vera með rétta hugarfarið þegar maður hendir draslinu, ef þú veist hvað ég meina. Ekki: „Ææ ég á örugglega eftir að nota þetta einhverntíma..“ Heldur: „Guð ég hef ekki notað þetta í marga mánuði, þá á ég örugglega ekkert eftir að nota það aftur!!“

Jæja.. ritgerð! :D
Bæ bæ
Þín sys Þóra

2:20 e.h.  
Blogger Helga said...

Þetta er svoo rétt hjá þér með hugarfarið. Málið er einmitt að geta losað sig frá hlutunum. Kannski er upplifun tengd flíkinni en það þýðir ekki að minningin sé farin í ruslið þegar maður gefur hlutinn frá sér.

3:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters