fimmtudagur, september 15, 2005

Blessunin hún Nína

Er með flensu, já bara allt í einu á þriðjudagskvöldið var hún með höfuðverk og nefrennsli. Mældum hita og hún var með 38,2 gráður. Sem er auðvitað ekki neinn hiti að ráði en höfuðverkur og almenn vanlíðan fylgir og þá getur maður ekki farið í skólann. Versta er að hitinn er ekki enn farin þrátt fyrir að hitinn sé minni á morgnana heldur en á kvöldin þá er hann enn til staðar. Ég sem ætlaði að senda hana með lest til ömmu sinnar um helgina. Ég er nefninlega að fara í skólann á föstud.kvöldið og svo á ég að vinna tvöfalt um helgina,morgun og kvöldvakt báða dagana og Alex er ekki heima. Það væri svosem alveg hægt að láta hana Nínu vera eina heima hér yfir heila helgi..... en er það nauðsynlegt? Svonalagað fer í taugarnar á mér í sambandi við þessa vinnu mína. Maður er að fórna barninu sínu fyrir vinnuna, það er þess ekki virði en ég læt fara svona með mig!

Við sjáum hvað setur, hvort hún sé hitalaus í kvöld þessi elska...

Sumarið er farið frá okkur núna, já aumingja við... Það var svo æðislegt veðrið í seinustu viku, 30 stig og svona alveg getur maður vanist því. Í dag er svo bara kalt, ég náði í vetrarsængina mína í gærkvöldi þegar ég fór að sofa, náttúrulega kalt þegar það vantar Alex í rúmið!!!

Jæja ætla að fara að skokka með einni úr vinnunni, verð nú að sýna mig með því að skrifa það hér að ég sé að hreyfa mig, hehe.....

5 Comments:

Blogger Sigga said...

Er það ekki í boði í þessari vinnu að vera bara heima hjá veiku barni....eða melda sjálfa þig bara veika þegar aðstæður eru svona???

5:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já sammála fyrri ræðumanni.. Um að gera.. Þessi vinnustaður er greinilega ekki þess virði!

Veikindakveðjur til Nínu.. Láttu þér batna ljúfan!

Það fer að styttast í að maður sjálfur taki vetrarsængina fram úr sumardvalanum. Það var snjór á Esjunni í gær.. sé það ekki í dag vegna veðurs en það er búið að vera ansi kalt!

Baráttukveðjur í skokkinu.. Helga taka þetta bara á hatrinu og heimskunni, það dugar ekkert annað :)

B.kv. þín sys Þóra

7:06 e.h.  
Blogger Helga said...

Ja þið segið nokkuð. Ætli samviskan í mér mundi ekki kála mér! Ég er að verða ekki neitt nema ein samviska, ég get svarið það!!!

Takk Þóra, já um að gera að berjast....

7:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

En hvað segir samviskan að fara frá veiku barni? ;)
Ekki hika við að vera heima, Nína er mikilvægari en vinnan.
Batakveðjur til Nínu,
Kv Systa

10:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég held að ég sé alltaf með vetrarsæng?? Eða eru það ekki þessar venjulegu dúnsængur;)

Sko, þegar að maður er veikur á maður svo innilega skilið að það sé dekrað við mann;)

God bedring Nína...

1:56 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters