Uppsögn
Ég er búin að fá nóg. Ég er búin að segja upp í vinnunni. Læt ekki bjóða mér svona framkomu. Þetta er nú meira vesenið. Ég hætti ekki fyrr en um áramót. Já þannig að nú er staðan sú að ég ákvað bara að segja upp, eftir að hafa verið að burðast með þessa vaxandi óánægju í maganum í lengri tíma. Skipulagningin var engin frá stjórnendum, ég vissi ekki fyrr en á fimmtudegi hvernig ég var að vinna um helgina og næstu viku. Ekki til neitt mánaðarvinnuplan sem hékk einhversstaðar og svona. Ég fæ ekki einu sinni alminnilega upplistaðan launaseðil. Hvað þá meira. Bara ekki nógu gott. Þannig að ég ákvað að segja upp. Ætla nú að einblína á að fá vinnu á sjúkrastofnun eða bara ekki neina vinnu, bara aðeins að herða sultarólina, gerir manni kannski bara aðeins gott. En ég er á nálunum yfir því að fara og tala við yfirmanninn. Hann er svona froðufellandi spenntur og sveittur yfirmaður sem treystir engum fyrir neinu. Ég á tíma hjá honum á fimmtudaginn. Spennandi.......


6 Comments:
Go Helga, go láttu kallinn ekki hafa áhrif á þig,þér er nákvæmlega sama.
Þetta er sterkur leikur mr.anonymous... en mér er aldrei sama. Það er mitt vandamál í lífinu, eða ekki, að vera aldrei sama!
Flott hjá þér....ekki láta fara svona með þig!
Komdu bara heim...hér er alltaf til vaktaplan:)
og hérna ertu metin meira að verðleikum! Það væri náttúrulega frábært að fá ykkur 'heim' og ég er að hugsa um að setja í gang undirskriftasöfnun þess efnis...
www.helgu_alex_og_ninu_heim.is :þ
(er reyndar ekki búinn að því ennþá þannig að þetta er 'bógus' linkur...)
En ekkert vera að stressa þig á yfirmanninum. Bara láttu hann hafa það óþvegið, þú hefur engra hagsmuna að gæta!
Ég skal skrifa undir strax!!!
Til hamingju, segi ég nú bara. Maður á ekki að eyða lífinu í að vera óánægður. Svo er evran líka alltaf að lækka;)
Takk fyrir stuðninginn. Ég hugsa að við komum nú ekki heim í flýti en hver veit hvað verður. Sniðugur með þennan link, alveg eins og að maður sér í höndum skæruliða.
Skrifa ummæli
<< Home