þriðjudagur, september 20, 2005

Gamla veik

Er það nú ástand á einu heimili í Coesfeld. Ég á ekki til aukatekið orð.....

Nína fór í fyrsta sinn í skólann í gær, svaka glöð eða þannig og beint í enskupróf (skítlétt, sagði hún). Þegar hún kom heim var hún eitthvað drusluleg og mældist þá 38,0 stiga hiti..... Ég var svo skrýtin í vinnunni, alveg á ælunni og allt svoleiðis... kom heim og var að frjósa inní mér. Komin með flensu... fór til læknis og var svooo slöpp í gær, ég gat varla farið á klóið. Það er nú ekki oft sem ég verð veik þannig að ég verð alveg frááá....

Mér líður nú betur í dag og Nínu líka, þannig að það er allt á betri veg. Bara drekka mikið og sofa mikið.

Alex kom heim í gær, ohhh það var æðislegt að fá hann loksins aftur heim, búinn að vera í rúma viku í burtu. Fagnaðarlætin voru samt í lágmarki þar sem gamla konan var í veikindamóki.

Bið að heilsa ykkur og passið ykkur á flensunni....

3 Comments:

Blogger Rokkarinn said...

Þú hefur vonandi ekki smitast af mér í gegnum bloggið mitt :þ

3:59 e.h.  
Blogger Helga said...

Nei hæ Óli, ég hélt þú værir að hætta að commenta.... bíddu varst þú með upp og niðurgggg.... en ömó... kannski þú hefur smitað Nínu og hún svo mig... hver veit hver máttur netsins á okkur mannfólkið er?

7:37 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Það er sem betur fer sjaldgæft að þú sért veik. Farðu vel með þig og láttu þér batna áður en þú ferð aftur í vinnuna ;)

Umsókn ykkar um byggingarlóðina er komin á réttan stað. Við og Valli og Dóra sóttum líka um, spennandi.

Nýja útlitið á blogginu er mjög flott.

2:50 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters