Haustgöngutúr
Í blíðunni í dag skelltum við okkur í göngutúr með Íslendingunum okkar í Stadtlohn. Við fórum, ég, Alex og Nína með Þórunni, Ragnhildi og Ásthildi um sveitirnar nálægt þar sem þau búa. Nína og stelpurnar söfnuðu mais af ökrunum. Bæði til skrauts og til að gefa dýrum. Við sáum hesta á leiðinni, þýska og íslenska, svín, kýr og mikið af mais ökrum. Að lokinni göngunni fórum við í kaffi og með því, mmmmm. Takk fyrir skemmtilegan dag.
Í morgun fór Nína í annan tímann á matreiðslunámskeiðinu. Hún er í tveggja vikna skólafríi núna og í þessari viku er hún á matreiðslunámskeið hjá kirkjustofnun í bænum. Svaka flott eldhús og margir krakkar saman að elda. Í gær fékk vinkona Nínu að fara með en hún var svo sótt seinnipartinn í gær. Nína hefur svo gaman af þessu námskeiði. Þeim er skipt í hópa og einn hópurinn gerir forrétt, einn aðalrétt, einn bakar, einn salat eða eitthvað og svo fram eftir götunum. Okkur foreldrunum finnst gaman að hún sé í þessu þar sem það er ekki nein matreiðsla í skólanum og Nína hefur svo gaman af matargerð. Hún verður örugglega dugleg að æfa sig hér heima en í lok námskeiðsins fá þau allar uppskriftirnar og þá er um að gera að æfa sig. ÉG þarf bara að loka öðru auganu í sambandi við frágengni en hún má bæta sig í henni eftir eldhúsnotkun. En það lærist allt saman.
Ég skila opinberlegri uppsögn á morgun, já því miður bara fyrir lok ársins. En ég er bara svo fegin að vera að hætta þarna að það skiptir ekki máli með þrjá mánuði til eða frá.
Svo í sambandi við lóðarmál þá skýrist það allt saman 12.okt. en þá verður lóðum úthlutað til þeirra sem dregnir voru út. Eins og málin líta út núna þá erum við næstsíðust að velja lóð, þá verða væntanlega bara tvær lóðir eftir, gefur auga leið. En vonandi ekki þær tvær sem snúa beint út að fimm hæðunum í blokkinni sem verið er að byggja? Bíðum og sjáum. jæja best að snúa sér að kvöldmatargerð, bið að heilsa í bili, ykkar Helga


3 Comments:
He, he, ég kannast við þetta í sambandi við fráganginn í eldhúsinu en Snorri er nú að samt að taka sig á. Maður hefur lokað augunum fyrir þessu hingað til vegna þess að manni finnst svo helv... gott að fá heimabakaða eplaköku, skinkuhorn, snúða eða Guð má vita hvað....;)
Já það hlýtur að lærast einhverntíma. Annars er nú líka til fólk sem gengur ekki vel um í eldhúsinu þrátt fyrir að vera komið á fullorðins aldur. En já ég hef fengið að njóta þess hve Snorri er myndarlegur, gaman að því, áfram svona Snorri.
Já ég held að við ættum að njóta þess á meðan þetta er.
Kannski er þetta bara eitthvað tímabil hjá þeim en vonandi er þetta eitthvað meira;)
Skrifa ummæli
<< Home