Lóð, lóð. lóð og aftur lóð
Eina sem ég hugsa um er bara lóóóóóððððð,
Já við fengum lóð, eða mamma. Mamma ætlar þú að fara að byggja? Hún varð í 15.sæti af 16 sem voru dregnir út og verður líka í þeirri röð að velja sér lóð. Það voru 109 sem sóttu um einbýlishúsalóð. Það verður fundur 12.okt þar sem lóðir verða valdar. Sjáum hvernig þetta allt fer. Það eina slæma við þetta er að vera ekki á staðnum og geta ekki séð ljóslifandi hvernig þessi blokk þarna sem verið er að byggja verður, til dæmis. Alex sagði við mig um daginn hvort ég gæti ekki skroppið, jú bara ekki málið.... verst að ég er í vinnu og á barn sem þarf að mæta í skóla og kemur heim kl.13:30 glorhungrað. Menn stundum!!! Hann Alex er búinn að finna síðu á netinu þar sem þessi blokk er kynnt bak og fyrir en aldrei sér maður hve langt þetta er frá húsunum eða nokkuð slíkt. Kannski á maður ekki að vera að velta þessu fyrir sér. Eins og einn vitur maður sagði, þá er hin eðal lóð, sú sem maður ímyndar sér hvort sem er ekki til.
Nína er komin í haustfrí. Já tvær vikur í glórí. Vinkona hennar Romina (Mini) frá Detmold er í heimsókn, kom í dag og verður fram á þriðjudag. Þær sofa í gestarúminu saman og eru búnar að setja allt Playmódótið hennar Nínu saman og Mini kom með helling með sér líka og voru að leika í því. Æðislegt þegar maður sér dömur, bráðum 11 ára leika sér í Playmó, það er auðvitað mömmó, skóli og vinna og allt mögulegt með í leiknum. Var maður að leika sér í svona þegar maður var 11. Mér finnst ég hafa verið svo fljótt fullorðin. Ég meina Atli var eins og maður var nú bara í alvöru mömmó í þá dagana. Those wore the days. Atli bebí. Hann var nú meira krúttið þessi drengur þegar hann var lítið, frekar lítið krúttlegt eftir af þessum stóra manni í dag. Denni dæmalausi var hann stundum kallaður. Í dag er hann búinn að klára smíðanám og allt hvaðeina. JEminn hvað tíminn er fljótur að líða.
Nóg af þessu rugli, eigið góða helgi kæru lesendur.


5 Comments:
Þú skreppur bara og tekur Nínu með ;)
Þið eruð ótrúlega heppin að hafa fengið lóð, vona að þið fáið draumalóðina, þið byggið allavega draumahúsið ekki satt?
kv Systa
Auðvitað skreppur þú bara heim...ekki spurning þegar verið er að taka svona mikilvægar ákvarðanir verður maður að vera með allt á hreinu.
Þegar eiginmaðurinn hvetur mann til að fara í ferðalag...þá fer maður...erhaggi?
þið segið nokkuð stelpur, hver veit nema maður verði bara veikur í vinnunni. Nei ég geri ekki svoleiðis, ég fæ það ekki af mér. Ég er allt of mikil veimiltíta.
Draumahúsið, júhú.
ertu ekki búin að segja upp hvort sem er? hvað á yfirmaðurinn að gera, reka þig...:)
kv Systa
Hvernig væri að þið kæmuð til að skoða aðstæður, fyrst Nína er í haustfríi?
Skrifa ummæli
<< Home