mánudagur, október 03, 2005

Vinkona Nínu í heimsókn

Hún Romina frá Detmold er í heimsókn hjá okkur. Í nótt er þriðja nóttin sem hún gistir hjá okkur. Þær stöllurnar voru eitt sinn bestu vinkonur. Eru enn mjög góðar vinkonur en vitanlega hefur margt breyst. Það er ótrúlegt hvað breytist hjá börnum í 5.bekk í Þýskalandi. Bara eftir því í hvaða skólaform þær eru flokkaðar í, ótrúlega áberandi stéttaskipting með tíu ára aldri. En þær eru enn góðar vinkonur og eru búnar að bralla margt sniðugt saman. Í dag fórum við í dýragarðinn í Munster, frábær dýragarður. Vorum frá hálf eitt, rúmlega til rúmlega sex. Ótrúlega gott veður og ótrúlega margir í dýragarðinum. Það var hægt að mata fílana sjálfur, já maður þurfti að setja gulrætur og gúrkur í nefholur þeirra, skrýtið ekki satt. Ég set inn myndir við tækifæri. En þetta er pottþétt fyrir þá sem koma til okkar í heimsókn. Með bíl, ca 40 mín frá okkur. Svo sáum við þegar verið var að gefa ljónunum að borða og svo svaka flotta sýningu í delfinarium, með háhyrningum og selum. Svo voru auðvitað öll önnur dýr líka.

Á morgun kemur svo mamman að sækja hana og við ætlum að baka köku, já hvorki meira né minna en brúntertu með smjörkremi og engri sultu. Þetta er þ0kkalega uppáháldskakan hennar Nínu. Alex er í fríi í næstu viku, ég vitanlega að vinna, en ég er hvort eð er komin heim um hádegi. Nína byrjar á matreiðslunámskeiði á morgun, frá 9-12 þri-föst. Í dag var frídagur, já sameiningardagur Þýskalands...

Jæja ég er hætt í bili, rauðvínið er farið að hafa áhrif á vélritunarhæfileika mína þannig að ég læt þetta gott heita í dag. Maður bíður spenntur eftir þriðja barni Gunnar Sturlu og Christel en þau eru búsett í Danmörku og hún er gengin framyfir og búið að reyna að setja hana í gang, en nú á að fara að ganga, miðað við seinustu fréttir.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá.. það er ekkert smá. Ég pant fá að koma í dýragarðinn þegar ég kem næst! Það verður spennandi að fá að sjá fílana og ljónin :)

Hvenær hættir þú í vinnunni svo Helga? Ertu ekki að vinna uppsagnarfrestinn núna?!

Góða skemmtun í kökuveislunni
Auf wiedersehen!
Deine swester (vona að þetta sé rétt skrifað)
Þóra

10:25 e.h.  
Blogger Helga said...

Þóra við förum þegar þú kemur í dýró. Ég þarf að vinna fram að áramótum, svo sérstakur uppsagnarfrestur. En ég er ekki að pirra mig á þessu, búin að eyða nóg af taugastressi í þessa vinnu. Er bara geðgt glöð að vera búin að segja upp.

12:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters