Tískusýning
Haldiði að ég sé ekki að fara á tískusýningu. Já ég af öllum, en það er aldrei of seint að verða tískudrottning. Það er í bílasölu hér í bæ. Drykkir og matur innifalið, númeruð sæti og kostar inn. Svaka prófessjonal, þeir eiga von á hátt í fimm hundruð manns. Við förum fjórar saman úr vinnunni. Nína verður góð að fara að sofa ein því Alex er enn á sýningunni í Frankfurt að taka saman sýningapallana frá bílasýningunni. Já mikið að gera hjá okkur.
Á morgun er æsispennandi dagur hjá okkur fjölskyldunni, þá verður dregið út í lóðarlottóinu í Akranesbæ. Það verður gaman að vita hvort mamma var berdreymin eða eins og Óli sagði, þá fáið þið lóð. En mömmu dreymdi að við hefðum ekki fengið lóð. Ég læt ykkur vita þegar ég veit eitthvað.
Best að fara að huga að matnum, ætlaði að búa til eplamús, fengum svo mikið af eplum úr garðinum. Þau eru of súr til að borða þau en fín í kökur og rétti. Þannig að húsmóðirin er dugleg þessa dagana að baka kökur og búa til eplamús.


8 Comments:
Ég krossa alla mína fingur fyrir ykkur :)
Systa
ekki veitir af takk fyrir það
Krossa fingur við að mamma sé 'öfugdreymin' eins og sannaðist þegar hana dreymdi að þau myndu ekki borga fyrir húsið...
Þið fenguð lóð :o) Til hamingju með það, en þið eruð nr. 15 í röðinni að fá að velja..
Kveðja Erna frænka
Já jibbýýý....
það er hægt að sjá alla sem fengu lóð undir www.akranes.is
Svo er bara að bíða til 12.okt en þá verður valið úr lóðunum. Hver veit nema við fáum lóðina sem okkur langar mest í?
Guð til hamingju elsku systir!
Æðislegar fréttir :D
Þóra
Frábært, til hamingju, hlakka mikið til að fá ykkur heim, kv Systa
Frábært!
Vonandi fáið þið lóðina sem ykkur langar í.
Skrifa ummæli
<< Home