laugardagur, október 08, 2005

Nína farin, þríþrautarárshátíð og tengdó

Tengdapabbi kom í gær í heimsókn. Nína verður hjá þeim í viku í fríi. Ætlar að nota seinni vikuna í haustfríinu til að vera að stússast með þeim. Hún hefur svo gaman af því að vera hjá þeim og þá er um að gera að leyfa henni það. Ég bakaði þessar fínu kökur í gær, skúffuköku með glassúr og plómuköku (með plómum úr frysti). Bragðaðist mjög fínt og urðu allir saddir.

Í gærkvöldi fór ég svo með Alex á árshátíð þríþrautaríþróttafélagsins. Það var fínt, lítið annað rætt en maraþon hér og þar og tíma hvers og eins og þessi ætti nú að geta verið tíu mín. fljótari á 42 km maraþon leiðinni. Og svo þríþraut hér og þar og hvernig hitt og þetta gekk. Svo er hlaup hér um næstu helgi, 10km og á hvaða tíma fólk ætlar að reyna að hlaupa það. HVENÆR ÉG ÆTLAÐI SVO AÐ TAKA ÞÁTT Í MÍNU FYRSTA ÞRÍÞRAUTARMÓTI????? Ég bara vissi ekki hvað ég átti að segja. Veit fólk ekki að ég er löngu, löngu byrjuð, híhíhíhí.... in my dreams. NEi ég held ég haldi mig við draumana. Amk þyrfti ég að taka aðeins á sultarólinni áður en ég legg í að æfa fyrir maraþon eða þríþrautar keppni. NEi ekki í bili, ég passa..... læt aðra um þetta.

Lúlli og Greta eru að flytja til Íslands. Greta er búin að klára námið hér og þá er ekki eftir neinu að bíða en að flytja heim á Húsavík. Gámurinn kom á föstudaginn og þau fljúga heim á fimmtudaginn. Þau koma í heimsókn til okkar á þriðjudag og gista eina eða tvær nætur. Það verður gaman að hitta þau áður en þau fara alfarin á frónið.

Gunnar Sturla og Christel eignuðust stúlku, Elviru Öglu þann 4.okt, innilegar hamingjuóskir með dömuna og nafnið hennar.

Við ætlum að skella okkur í bæinn í dag og hver veit nema maður verði svo smá sportlegur og hreyfi sig aðeins í tilefni dagsins. Það verður skrýtið að Nína sé í burtu. Hún kemur heim á föstud. með lest til Munster, við komum svo saman með lest til Coesfeld en ég er í munster í skólanum á föstudeginum.

Bestu kveðjur í bili
ykkar Helga

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters