Tryggingar og afbrot
Tryggingar eru nú alveg sér kafli út af fyrir sig. Maður borgar helst allt sitt líf einhverjar blessaðar tryggingar og ef maður er heppinn sér maður ekki eyri frá þeim í staðinn. Í kvöld kom náungi frá tryggingafélaginu okkar útaf því sem við lentum í í Svíþjóð. Fyrir þá sem ekki vita vorum við rænd. Já nýja keppnishjólið hans Alex, haldarinn fyrir hjólið á bílnum-kúlunni að aftan og nýja yfirtjaldið af nýja tjaldinu.
Við létum vitanlega tryggingarnar strax vita. Nei viti menn það er þannig að hjólið þarf að tryggja sérstaklega! Já okei, skil, allt sem er tekið þarf örugglega að tryggja sérstaklega eða hvað? Nei í alvöru ég er komin með nóg. Ekki nóg með að maður hafi upplifað dauðahræðslu og að maður hafi verið rændur nýja yfirtjaldinu og nýja keppnishjólinu heldur fær maður sennilega ekki neitt út úr tryggingunum sem maður borgar samviskusamlega árlega. Til hvers spyr ég bara. Alex er þeirrar skoðunar að maður geti sparað með að borga engar tryggingar og keypt sér það sem skemmist án þess að vera að ergja sig á því að fá ekki neitt úr tryggingunum þegar eitthvað gerist.
Hvað segið þið. Vitið þið til dæmis hvað þið borgið á mánuði í tryggingar, með öllu, bíl og alles? Hafið þið fengið eitthvað út úr tryggingunum?
Ein smá bitur


7 Comments:
Ég er ótryggð þannig að ég get ekki sagt til um það! En mér er alveg sama þar sem ég á svo lítið verðmætt fyrir utan eitt lítið kisugrey :)
Ég ætlaði að kaupa mér svona innbústryggingu en ég geri það bara kannski seinna. Það er samt alveg vit í þessu hjá ykkur. Maður tryggir sig einhvernveginn og svo lendir maður í einhvers konar tjóni sem fæst ekki bætt.
Eins og t.d. hamfaratryggingu, það fær sér víst enginn svoleiðis og þegar það gerist þá hefur fólk misst allt!
Ömurlegt...
B.kv. Þín sys þóra
Við erum að boga 15500 á mánuði í tryggingar, við erum með allt tryggt, tvo bíla, innbú, fasteignatryggingu, frístundatryggingu, líf og slysa, bara nefndu það, allan pakkann.
Í þetta eina sinn sem var brotist inn í bílinn okkar og geislaspilaranum stolið þá fengum við ekkert bætt því svona dýrar græjur eru ekki tryggðar eða eitthvað... það eru reyndar 9 ár síðan og þetta hefur kannski eitthvað breyst en samt ég er enn í fýlu en þori samt ekki annað en að hafa allt tryggt :(
kv Systa
ég gleymdi nú að segja það að mér fundust tryggingarnar vera dýrar hjá okkur og hringdi í fyrra og spurði hvort þau gætu ekki eitthvað lagað þetta, konan sagði "bíddu aðins" og svo "ég get lækkað þær um 30000" hugsaðu þér við vorum búin að vera að borga allt of mikið á ári en enginn sagði okkur að við gætum fengið auka afslætti og svona og svo bara bíddu aðeins og 30 þús lækkun, ég varð svo reið að ég er ekki enn búin að jafna mig, þetta eru allt saman glæpamenn sem hræða mann til að kaupa rándýrar tryggingar og svo fær maður ekkert, t.d. í sjúkdómatryggingunni er ekki nóg að missa einn útlim til að fá bætur, nei þú verður að missa tvo!!!
úff ég verð að róa mig niður tryggingamál gera mig bara brjálaða :)
kv Systa
Ég verð bara svo reið þegar að byrjað er að tala um tryggingar. Yfirleitt er það fólkið sem á það svo skilið sem fær ekkert bætt og svo er annað fólk sem stundar að svíkja út úr tryggingum!!!
Ég hef oft hugsað út í það hvort maður ætti ekki bara að leggja vissa upphæð inn á eigin reikning á mánuði sem yrði þá notaður ef að eitthvað kæmi fyrir.
En það er einmitt þetta "ef" og þess vegna þorir maður ekki öðru en að tryggja.....:-/
Systa ég skil að þú sért reið. Eins og að manni sé sama um að vera að borga of mikið. Ojjj... Já þetta er viðkvæmt málefni á örugglega flestum heimilum. Þóra þig skil ég að vera ekki með tryggingu en samt eru verðmæti hjá þér í íbúðinni s.s. sjónvarp, tölva, rúm, búsávörur, bækur, húsgögn og kisuboxið. Nei bara sem dæmi, auðvitað fyrir utan hjólið, þetta eru allt verðmæti.
Já ég veit.. en rúmið mitt er fjörgamalt og handónýtt.. sjónvarpið er algjört drast sem ég keypti á slikkerí fyrir 10 árum síðan eða eitthvað.. reyndar á ég bækur já, sófa frá Óla og búsáhöld og hillur.. En æi.. þetta er nú samt eitthvað drasl :)
Bæjó Þóra
en málið er að þó svo maður eigi bara verðlaust "drasl" þá verður maður að kaupa nýtt ef maður missir það...
kv Systa
Skrifa ummæli
<< Home