þriðjudagur, september 27, 2005

þriðji danstíminn

Við verðum nú aðeins að æfa okkur í haustfríinu. Ég keypti disk af dansskólanum sem segir alltaf eitt skref til hægri og svona í byrjun á hverjum dansi. Seinast þegar við vorum í danstíma þá voru lengra komnir í öðrum sal og vá ég meina, vúúú. Ótrúlega væri gaman að vera svona flottur dansari. Kannski er ég búin að finna nýjan atvinnuvettvang fyrir sjálfa mig. Atvinnudansari? Amk finnst mér og Alex líka þetta rosalega gaman. Það svoleiðis lak af mér svitinn í seinasta tíma. Góð íþrótt gulli betri.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já það er ekki verra en hvað annað.. atvinnudansari..

B.kv. Þóra

5:33 e.h.  
Blogger softone said...

Vá, hvernig gastu lokkað kallinn í dans? Það gengur ekkert hjá mér að fá Leif með mér í danstíma!

Kveðja,
Gréta.

1:08 f.h.  
Blogger Helga said...

Gifta sig Greta, það er lykilinn, þá gera þeir allt með manni. Hehe, neinei þú hefur greinilega ekki verið með manninum mínum á balli. Hann er sko sá fyrsti á gólfið, svona næstum því.

11:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters