miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Skólaguðsþjónusta miðvikudaga kl.8:00

Í morgun fór Nína í skólann 25 mín í kl.8. Það er alltaf guðsþjónusta í fyrsta tíma á miðvikudögum, þá eru allir nemendur skólans sem vilja mættir til að taka þátt í guðsþjónustu með presti skólans. Allir nemendur frá 5. til 13.bekkjar eru þá ekki í öðrum námstíma á þessum tíma. Nína hefur notað tækifærið til að sofa út ansi marga morgna en í morgun mætti hún því það var að byrja nýr prestur. Og það borgaði sig að hennar mati, það var gaman. Ætli hún mæti ekki næst þá líka?

Manni þætti þetta örugglega svona og svona heima á Íslandi. Að hafa guðsþjónustu í fyrsta skólatíma í hverri viku. Nei ég hugsa að það mundi verða uppi fótur og fit útaf svona nokkru. Mér finnst þetta mjögg gott mál og er glöð og jákvæð yfir því að Nína vilji mæta þarna. Fólk er vissulega með mismunandi skoðanir á trúarmálum og eitt gott af því að segja en við ölum Nínu trúarlega upp og mér finnst gott að trúa. Ég var svolítið sár í gær þegar ég var að ræða við Nínu um faðir vorið, hún er í kaþólskum skóla og er ekki alveg með faðirvorið á þýsku á hreinu, hún sagði að það skipti engu því það segja það alltaf svo margir hvort eð er, henni nægir að kunna það á íslensku! Nú verður unnið í þessu, læra faðirvorið á þýsku. Við vorum dugleg að fara með Nínu í sunnudagaskólann í neskirkju, henni og okkur fannst gaman þar og við áttum góða kunningja sem við hittum alltaf þar. Svo mörg voru þau orð!

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú allavega gott að þetta er val í skólanum, ekki þætti mér gott ef það væri verið að þvinga nemendur til þess að sitja undir guðsorðum. En bara frábært að Nína skemmtir sér vel þarna, þá er sko um að gera að mæta;)

5:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já flott að henni finnst þetta gaman :) Annars var það nú í fréttunum um daginn að Íslendingar eru víst að taka sig á í þessu. Allavega núna miklu fleiri farnir að mæta í sunnudagsmessu heldur en hefur verið í fjöldamörg ár ;)

Over and out
Þín systir Þóra

11:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég var ótrúlega spennt fyrir því að fara í messu á tímabili sem unglingskrakki. En það mættu einmitt alltaf bara fjórir með mér eða eitthvað á þann veg. Gaman að Íslendingar séu farnir að taka sig á í þessu.
kveðja
Helga

3:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég mætti nú ekki oft í messu, en samt stundum í sunnudagaskólann og KFUM og K. EIginlega var ég alls staðar þar sem var sungið þ.e. í kór og skátunum líka. Fór meira að segja stundum á fundi í hvítasunnusöfnuðinum. Þar var alltaf sungið og föndrað....;)

4:50 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú margt verra til en að fara í skáta, kirkju, hvítasunnusöfnuðinn og allt þetta klúbbdót. Þyrftu kannski að vera til klúbbar bara til að syngja og föndra saman án þess að vera með trúnna alltaf í bakinu!
Kveðja
Helga

8:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters