Jólin
Mig langar til að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og takk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða. Hlakka til að halda áfram í samskiptum við ykkur á komandi ári. Hafið það rosalega gott yfir hátíðirnar og njótið lífsins.
Við erum að fara á morgun til Eveline tengdamömmu og verðum hjá þeim á aðfangadegi, á jóladag er matur hjá Christoph bróður Alex og annan er svo aftur matur hjá Eveline, gæs..... Þannig að við stefnum á að vera dugleg í göngutúrunum og hlaða svo vel á okkur mat.
Lifið heil og megi guð vera með ykkur


5 Comments:
Gleðileg jól elsku Helga mín og vegni þér og fjölskyldu þinni allt í haginn á komandi ári.
Hlakka til að sjá þig í janúar.
Knúsaðu Nínu og Alex frá okkur hérna á Garðabrautinni.
Hafið það nú sem allra best um jólin, vonandi náum við nú aðeins að hittast áður en ég fer aftur.
Kossar og knús frá klakanum
Takk stelpur mínar, þið eruð velkomnar í kaffi á Jörundarholt 15 en þar verð ég hjá mömmu með Nínu trínu.
Hafið það sem allra best yfir jólin.
Sjáumst vonandi í Jan.
Greta og co.
Já ég tek undir með Helgu, þið eruð velkomnar í kaffi hingað stelpur mínar.
Gleðileg jól.
Skrifa ummæli
<< Home