Hvar er loftið
Það er einhvernveginn farið úr mér loftið hér, verð að taka mig til í andlitinu og gera eitthvað í þessu. Í gær dreif ég mig í bíó með Marinu, fórum á myndina með Jennifer Aniston og Kevin Kostner, alveg ekta mynd fyrir okkur, grétum og grétum. Fyndið að það voru eiginlega bara konur í salnum, kannski þrír karlmenn. Æi mér finnst bara æðislegt að fara á konumynd í bíó.
Um helgina var svaka prógramm hjá okkur á laugardeginum vorum við að læra reikning með Nínu. ÞAð er búið að vera allt á fullu í skólanum og ekki gengið eins vel og oft áður að komast í gang en það er að smella núna. Svo fór ég út á lífið á laugard.kvöldi, á kvennaklúbbinn. Á sunnud. morgun fórum við svo í sund með gufu og solebad og það var alveg pottþétt. Fengum svakalega flotta húðmeðferð í gufunni, með salti og klukkustund síðar með hunangi enda var húðin alveg silkimjúk og fín. Eftir sundið fórum við svöng og útkeyrð í frábært kaffi til Þórunnar og Andrésar til Stadtlohn. Fengum þar alveg rosalegar kræsingar, borðuðum og borðuðum enda orðin sársvöng eftir sundið, hehe. Svolítið neyðarlegt þegar allir borða svona mikið en það mætti góðum skilningi hjá heimilisfólki. Héldum svo heim á leið um kvöldmatarleitið og elduðum úrbeinaðann hrygg, mmmmhhhh. Einn besti matur sem maður fær, ég kom með hrygg frá Íslandi.
Svo er maður bara að dunda sér þessa dagana, lætur sér líða vel og fer út að ganga ef það er ekki rigning. Það var búið að vera svo yndislegt veður í tvo daga, glampandi sólskyn og fuglasöngur, alveg eins og það væri að koma vor en svo var búið að spá snjókomu í dag og næstu daga, reyndar bara rigningu hjá okkur en samt. Þannig að það er ekki alveg komið vor þrátt fyrir að það fari að styttast í það hér hjá okkur.


4 Comments:
Mér finnst þú nú mjög dugleg að fara út og gera sitthvað skemmtilegt, ef þú er loftlaus þá er ég sennilega dauð :)
Rosalega gaman að hitta þig um daginn og hlakka mikið til að hitta ykkur um páskana.
kv Systa
Systa mín, ég átti nú við að blogga!!! híhíhí... hvaða loftleysi er þetta í þér stelpa ;-) Já það var svakalega gaman að hittast, bara muna að plana betur krakkahittinginn okkar næst....
Flottar áramótamyndir!! Hafðu það sem allra best.
Takk Heiðrún mín, er dugleg að láta mér líða vel. Inga ég trúi ekki að þú sért að bíða eftir snjó, þetta er húsvíkingurinn í þér! Ég bíð eftir vorinu, svona eru skagamenn, hehehe. Hvernig líst þér á þriðjud.morgun, ég mundi kíkja í kaffi og þarf að skreppa í H&M.
Skrifa ummæli
<< Home