Allt sem fernt er NÆLA
4 störf sem að ég hef unnið
Saumakona á 66 gráður Norður, aðstoðarstúlka á pósthúsinu, skúringarkona á héraðsbókasafni Akraness og aðstoðarkona í eldhúsinu á Sjúkrahúsi Akraness.
4 staðir sem ég hef búið
Melteigur 7,Akranesi, Vallholt 13,Akranesi, Sichterheidestrasse 10 Detmold þýskalandi, Dunhagi Reykjavík.
4 sjónvarpsþættir sem ég elska að horfa á
ER, Tatort, Frauenknast, Sex in the city
4 staðir ég hef verið í fríi á
Benidorm, Tyrkland, Svíþjóð, Belgía
4 vefsíður sem ég skoða daglegawww.rokkidlifir.blogspot.com, www.internet.is/heidrunh/, www.blogcentral.is/thoraatla, blogg sem hjúkkuvinkonurmínar eru með
4 besti maturinn
Lambahryggur, Svínalærisneiðar í rjómasósu með tómötum og osti, Aspas, Nautafile
4 staðir sem ég vildi vera á núna
Þar sem ég er: heima hjá mér og minni fjölskyldu, í heimsókn hjá Krissý í Ástralíu í hitanum, á Íslandi hjá fjölskyldu og vinum og kunningjum, Á Kanarý
4 bloggarar sem ég næli Þóra, Mamma, Christel, Gunnur


5 Comments:
Ekki gleyma Akraborginni minni ægifögru og svo Holtsgötu 17...það eigum við sameiginlegt;)
Ég valdi bara eitthvað ég hef unnið á svo óskaplega mörgum stöðum, ss. eldhúsinu á elliheimilinu, nokkrum sjúkrahúsum, skaganesti, úra og skartgripaverslun Guðmundar Hannah, Helga Júl, Akraborginni, vinnuskólanum og örugglega eitthvað fleira. Svo hef ég átt heima á Holtsgötunni, Einigrund, Reynigrund, Brekkubraut, Krókatúni, Ahornstrasse, og núna á Wertchenstrasse....
En mér datt engar bíómyndir í hug, HAHAHA ég horfi ekki á vídeó! þú hefur ekki tekið eftir því ;-)
Þú hefur líka átt heima á Garðabrautinni. Þegar ég las þetta fór ég í huganum yfir þá staði sem ég hef búið á og ég sé að þú hefur búið á fleiri stöðum en ég kemst bara í 10 staði frá fæðingu. Ég tel Laugarvatn þar sem ég vann í 6 sumur og einn vetur ekki með.
En ég skil ekki fyrirsögnina Allt sem fernt er NÆLA, hvað meinar þú með NÆLA?
Bestu kveðjur og góða helgi :)Ég ætla að hringja í þig núna klukkan er 12:04
Er ég næld... eða er ég næla... :-)
Hvað á ég að gera???
Allt í pati.....
Svara þessum fjögurra þátta spurningum og bæta 4 bestu bíómyndum sem þú hefur horft á við....
kveðja
Helga
Skrifa ummæli
<< Home