miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Lyktin af Lavendel

Ég skellti mér í bíó í gær með einni vinkonu. Það var ekki verið að sýna nýja mynd heldur svona í klassískari stílnum. Ferlega gaman, ég held að hún hafi verið ensk en það var einn þýskur leikari sem lék í henni, Daniel Bruhl. Myndin fjallar um systur sem eru komnar vel yfir miðjan aldur og finna mann sem rekið hefur að landi í fjörunni við húsið þeirra. Þær koma manninum í rúm, sækja lækni og hjúkra honum. Hann jafnar sig fljótt og yngri systirin, örugglega hátt á 70 ára gömul verður yfir sig ástfangin af honum. Hann spilar á fiðlu og er mjög fær. Myndir fjallar um það hve erfitt það getur verið að kveðja og sleppa einhverjum. Mjög áhrifarík og skilur mikið eftir sig. Gaman af svona myndum finnst mér.

Í gær var fyrrverandi Forseti Þýskalands jarðsettur, Johannes Rau, blessuð sé minning hans. Hann var lengi stjórnmálamaður og náði mörgu fram með góðvisku sinni, kristni og mannlegri færni sinni. Hans verður án efa sárt saknað af mörgum. Hann var nýorðinn 75 ára þegar hann lést og það hafði ekki verið greint frá því að hann væri svona rosalega veikur þannig að andlát hans kom mörgum mjög í opna skjöldu.

Nú er Alex búinn að skila sínu verki varðandi teikningar af húsinu, nú er það Bjarni sem sér um restina, bíð spennt eftir niðurstöðum.

Óli bróðir er búinn að skila lokaritgerð sinni í Uppeldis-og menntunarfræðum, frábært hjá honum, það verður líka gaman að fylgjast með því hjá honum. Hann er byrjaður í mastersnámi í háskólanum og er að fara að flytja í stærri stúdentaíbúð með sinni ektakonu Karen. Þetta á aldeilis eftir að verða merkilegt ár, mamma að fara til DK í nám, Óli búinn með BA, Þóra að klára BA í haust, við að byggja og flytja og ... já það er varla hægt að toppa þetta, þá kannski fær maður bara sjokk..... okei nema að vinna í lottó ég væri sko alveg til í það.

Nóg af þessari vitleysu í bili, bið ykkur vel að lifa....

4 Comments:

Blogger Rokkarinn said...

BA ;)

11:43 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

sorry
Helga

12:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já ég er sammála þér með svona bíómyndir.. Þær geta verið mjög skemmtilegar :)

Já það má með sanni segja að þetta ár verður viðburðaríkt. Gaman!!
Bæ bæ, Þóra.

7:28 e.h.  
Blogger Bippi said...

Alltaf gaman að horfa á myndir sem að skilja eitthvað eftir sig....

....verður það sem sagt á þessu ári sem þið flytjið eða?

1:57 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters