Febrúar
Þá er kominn febrúar. Þorri byrjaður og þá fer maður á þorrablót, en við ætlum ekki að fara þetta árið. Einhvernveginn vantar drifkraft í þessu, Greta, af hverju voruð þið að fara til Íslands???? Við hefðum verið góðar í að fara aftur saman. Tökum þetta á Íslandi einhverntíma.
Við erum búinn að kaupa flug til Íslands um páskana. Fljúgum 13.apríl og förum 23.apríl, ekki svo langt stopp í þetta sinn en það fer nú að styttast í að maður komi alfarið. Það verður gaman að koma, það verður árshátíð hjá hjúkkuhópnum 19. og ég hlakka mjög til að fara þangað, það er alltaf svo gaman með þessum snúllum.
Vinkona Nínu gisti í nótt og þær voru að kjafta til að ganga tvö. Ég og Alex vorum löngu sofnuð. Þær voru svo byrjaðar að spjalla saman aftur um hálf átta í morgun, ótrúlegur kraftur í þessum pæjum. Nú eru einhverjar byrjaðar að eiga kærasta í bekknum, reyndar eru sumar stelpurna á 12 ári, en vá, kyssast og leiðast!!! Það er eins gott að maður fer að hafa annað verkefni heldur en að velta sér upp úr því hvort Nína sé farin að kyssast og svona, það verður gaman fyrir Nínu þegar að því kemur. Sumar mála sig með maskara fyrir skólann. Frekar snemmt fyrir minn smekk en kannski verður maður að láta þær vita að þær megi þetta svo þær fari ekki í einhvern feluleik fyrir foreldrum sínum með þessi mál. Þetta er ansi viðkvæmur aldur og ég er oft að velta fyrir mér hvernig maður á að taka á hinum ýmsu málum sem upp koma og reyni að vera réttlát en svo þegar ég hugsa til baka þá fannst mér margt óréttlátt sem mér finnst ekki í dag. Nínu langar til dæmis í tölvu inn í herbergi sitt, það eru margir með tölvu inni í herberginu, eða í sjónvarp. Unglingsárin eru ekki auðveld, ég er þakklát fyrir að vera ekki unglingur, en eftir á er þetta yndislegur tími.
Læt þetta duga, eigið góða helgi, bestu kveðjur Helga


5 Comments:
það er pottþétt Helga við förum á þorrablót þegar þið komið heim.
Já það er lítið mál að vera með börnin lítil, en unglingurinn(-:
Tek þig á orðinu Greta mín, geri ráð fyrir að þetta sért þú?
Helga
Já, það hafa ýmis kærustumál komið upp í skólanum hjá Snorra þó svo að honum þykir stelpur ennþá ekkert spennandi þannig....svo segir hann allavega;)
Maður hugsar einmitt oft um að unglingsárin nálgast óðum en maður verður að líta björtum augum á þetta því það getur verið frábært að vera unglingur ef manni líður vel með sjálfan sig;)
Sammála unglingsárin eru mjög skemmtileg og líka að ala upp ungling, en nú eru það fíkniefnin sem maður er skíthræddur við þetta er út um allt en sem betur fer á ég ungling sem gott er að setjast niður með og tala við og er ennþá vinur okkar það skiptir gífulega miklu máli.
En svo er málið að miða unglinginn ekki út frá hvernig þú varst eða hvernig vinirnir eru því öll erum við einstakir einstaklingar.
Há-fleykt ekki satt en svona er þetta(-:
kv. af klakanum
GBB
Já öll erum við sérstök og það er mikilvægt að gleyma því ekki. Þetta eru spennandi ár með margt sem gaman er að prufa.
bk
Helga
Skrifa ummæli
<< Home