Lambahryggur og uppeldis-og menntunarfræðingurinn Óli Örn
Óli bróðir er að fara að útskrifast í febrúar útskrift úr Hskóla Íslands. Lokaverkefni hans heitir Sameiginleg forsjá og reynsla feðra af jafnri umsjá. Mjög áhugavert lokaverkefni, ég fékk að lesa það hjá honum. Óli minn enn og aftur til hamingju með áfangann.
Það var aldeilis gaman hjá okkur um helgina. Alex og Nína skelltu sér til Detmold á laugardag. Nína í afmæli til Rominu bestu vinkonu sinnar sem varð 11 ára og bauð í keilu og pizzupartý á eftir. Nína gaf henni lavalampa, það er rosa kúl lampi sem kúlur í lit hreyfast upp og niður í þar til gerðum vökva. Lampinn gerði mikla lukku. Það var gaman í afmælinu. Alex fór á opið hús í skólanum sem hann var í og hitti nokkra gamla skólafélaga að því tilefni á brugghúsi bæjarins, mamma mannstu, systkini mín sjá snafsaglösin!!! Hann notaði svo tækifærið og tók nýja fákinn með sér og tók sprett um fjöll og skóga en það er ótrúleg náttúrufegurðin þarna.
Ég hafði það rosalega notarlegt á húsmæðradegi mínum og fór á lífið um kvöldið með kvennaklúbbnum sem ég er í, það er æðislegt hvað við nálgumst alltaf mikið þrátt fyrir að eiga bara það sameiginlegt að vilja kynnast skemmtilegum konum. Kynntumst í gegnum bæjarblaðið, spáið í því.
Í dag fórum við Alex svo í vetrargöngutúr en það var svo fallegt veður þrátt fyrir að vera töluvert kalt, um tvær gráður. Það er svo fyndið en ég þurfti endilega að losa mig við líkamsvökva á miðri leið þar sem ekki neitt salerni var nálægt, Alex ferlega frjálslegur, "Hva pissaðu bara hér". Það voru bara hús allt í kring og engin tré til að fela sig í.... en ég hélt í mér og þetta bjargaðist allt.... En það sem toppaði daginn var úrbeinaði lambahryggurinn sem við elduðum í kvöldmatinn, með malt og appelsín (Karamalz og Fanta). I love it.,.....


3 Comments:
Gott hjá ykkur stelpunum að hittast í klúbbnum. Já lambahryggurinn er góður :)
Bið að heilsa ykkur og gangi þér vel að læra.
Takk fyrir það mamma, þú ættir að taka þátt í samræðu á blogginu hjá Heiðrúnu í sambandi við grænmeti og ávexti.
Já það gengur misvel að læra en þetta er ágætt.
Gangi þér líka vel að læra mamma...
Heyrðu, ég hlýt að vera kúl því að ég á lavalampa;)
íslenskt lambakjöt er best í heimi;)
Skrifa ummæli
<< Home