Sól og kuldi
Alvöru kuldaboli er í heimsókn hjá okkur núna. Í dag eru bara búnar að vera mínus tölur á hitamælinum. En sól og rosalega fallegt gluggaveður. Ég fór að ganga í morgun og vá, þegar ég kom heim eftir rúman klukkutíma þá var ég með stóra rauða bletti á lærunum. Var samt vel klædd en kuldinn, já sjö stiga frost, var það mikill að hann beit í mig. Fór í sturtu, hefði örugglega átt að bíða fyrst því það var svo sárt, en ég er búin að jafna mig núna. Það er svo spáð snjókomu á miðvikudag og fimmtudag, þannig að Inga mín, þú verður bara í startholunum.
Alex var að fara til Brussel í gær, kemur aftur á miðvikudaginn, karlanginn, að standa úti í þessum kulda allann liðlangann daginn og segja fólki fyrir verkum, ekki vildi ég vera í hans sporum. Hann er með sínar bestu hosur og úlpu og vettlinga þannig að það ætti að verða í lagi með hann.
Það er einkunnagjöf hjá Nínu á föstudag, það verður spennandi að sjá hvernig fyrsta önninn í fimmta bekk hefur komið út hjá henni. Hún er nú sjálf ekki neitt sérlega spennt, samt er þetta alltaf viðburður.
Nú að öðru leiti er ekki mikið að frétta, allt við það sama. Bið ykkur vel að lifa í bili og munið að passa ykkur á kuldabola.....


7 Comments:
Klæðið ykkur vel í kuldanum elskurnar, hér er fínt veður þessa stundina hiti, rigning en flughálka, eiginlega alveg gler. Ég hlakka til að sjá hvernig Nínu hefur gengið í prófunum :)
Já við gerum það, keyrið þið varlega, það er aldrei of varlega farið. Það verður spennandi á föstudaginn, hún er nú ekki að reyna neitt of mikið á sig, hún passar sig á að ofkeyra sig ekki þessi perla, híhí. Líkist pabba sínum með það, hahaha.
kveðja Helga
Ha ha ha.. Bara að kíkja og vildi segja þér að það er sami skítakuldinn hér. Maður er alltaf í sokkabuxum og tilheyrandi.. :Z
Bið að heilsa og hafðu það gott elsku systir!
Þetta var ég Þóra
Takk Þóra mín, já það er sko eins gott að klæða sig eftir veðri. Skemmtilegt að ég var á foreldra kjaftakvöldi og ein mamman var að segja að henni fyndist svo frábært að Nína væri svo dugleg að klæða sig í húfu og vettlinga og regnbuxur ef það er rigning, hennar dætur gerðu þetta ekki. Ég þarf ekki að biðja Nínu að klæða sig, hver vill vera kaldur og blautur??? Ég meina tíska okei en kommon....
Inga helduru að það sé ekki hvít jörð hjá okkur. Fór í göngutúr með Þórunni áðan og það byrjaði að snjóa á okkur. Varð hugsað til þín. Það er gott að hann er hitalaus karlinn, já lætur nægja að kíkja í glugganum á snjóinn.
:-)
Helvítis spamm-comment!!! Ótrúlegt hvað það er hægt að gera 'script' yfir allt saman... meira að segja til að gera spammcomment og auglýsa 'dauða' linka eða linka með vírusum >:[
Skrifa ummæli
<< Home