þriðjudagur, mars 14, 2006

Ljósmóðir mín

Ég er komin með ljósmóðir. Ég átti fyrsta tímann hjá henni í dag. Hún er með ljósmæðrastofu niðri í bæ en þess fyrir utan má hringja í hana á hvaða tíma dags sem er. Við spjölluðum saman í klukkutíma og hún skoðaði kúlu stóru. Ég er komin 22+5 vikur en að hennar mati er ég komin viku lengra, útfrá stærð legsins (ég held að íslensk/þýsk börn séu kannski bara stærri en þýsk?? Amk var kúlan þegar ég gekk með Nínu líka alltaf einu staðalfráviki yfir meðaltal amk.). Getur verið einn yfir nafla en á að vera á nafla eða undir nafla, æi ég man þetta ekki, hún sagði mér það í morgun. Hún sagði mér að kaupa mér Weleda olíu á húðina en ég fæ stundum svona kláða af þurrki þrátt fyrir að hafa borið á mig krem. svo vildi hún að ég tæki inn 7 remediur á kvöldin með óléttutei/svefntei til að koma í veg fyrir vöðvaverki í kálfunum en ég var með það í seinustu viku. Hún var mjög ánægð með stöðu mála og það verður gaman að fylgjast með því hvað hún bendir mér á að gera sem er nýtt fyrir mér, eins og þetta með remediurnar líka í sambandi við þegar nær dregur fæðingu og svona.

7 Comments:

Blogger Bippi said...

Æ, en spennandi......þú leyfir okkur svo að fylgjast með gangi mála;)

3:34 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Hæ!
Er ég vitlaus hvað meinarðu með remediur?
Ég var látin taka magnesium og varð betri en þetta var alltaf bara í vi-fæti, skrítið.
Gangi þér vel bumbulína -fylgjumst með.
GBB

3:38 e.h.  
Blogger Sigga said...

Spennandi!
Já Íslensk börn eru náttlega stærri en þýsk svo það er alveg eðlilegt að vera aðeins yfir meðaltali.

Ertu búin að ákveða á hvaða spítala þú ætlar að fæða?
(þú ætlar vonandi að fæða á spítala-þar sem allt er til alls...segir þessi stressaða)!

5:04 e.h.  
Blogger Helga said...

Greta mín, remedíur er fyrir glóbúlís, sem sagt homópatínáttúrulyf. Ég er öll í þessu, hefði annars látið mér nægja að taka Magnesíum, hef gert það hingað til en maður verður nú að prufa....

Jú Sigga ég ætla að fæða á sjúkrahúsi, hér í Coesfeld, það er bara eitt sjúkrahús sem auðveldar valið. Ég mundi ekki treysta mér í heimafæðingu nema vera mjög nálægt sjúkrahúsi og vera með ljósu sem ég þekkti vel og vissi eitthvað um.

7:02 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Ég sá einmitt í Rimaapóteki tvær gerðir af Weleda olíu fyrir óléttar konur og varð hugsað til þín.

10:18 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl og blessuð Helga mín!

Var einmitt að frétta að þú ættir von á litlu kríli, til hamingju! Er einmitt í svipuðu ástandi, komin 26 vikur og 5 daga. Ég mæli einmitt með góðri olíu á húðina og reyndar teygi ég alltaf vöðvana í kálfunum á kvöldin annars eru þeir svoooo sárir. Ætlarðu að eiga í Þýskalandi?

Bestu kveðjur,

Svana í London x x

2:02 e.h.  
Blogger Helga said...

Blessuð Svana mín, ég hitti mömmu þína í jan á Íslandi og hún sagði mér að þú ættir von á þér einmitt mánuði á eftir mér. Æðislegt, til hamingju með kúlubúann, hvernig hefur þú það? Ég ætla að eiga í Þýskalandi en við stefnum á heimflutning snemma á næsta ári. Gangi þér vel Svana mín, kveðja Helga

8:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters