föstudagur, mars 24, 2006

útlendingur í Þýskalandi

Það er nú ekkert grín ef þeir í Hessen ná að gera það að reglu fyrir þá sem sækja um ríkisborgararétt að þeir þurfi að gangast undir 100 spurninga próf. Já próf um sögu Þýskalands, fótbolta, stjórnmál, grunnréttindi, hlutverk kvenna, skoðanir og fleira. Algjörlega merkilega erfitt fyrir þá sem virkilega vilja verða þýskir. Ég vil það ekki þannig að ég þarf ekki að fara í þetta próf en það á að bjóða upp á nám fyrir þá sem ætla í þetta próf svo að líkurnar á að þeir nái aukist. Sérstakt ekki satt. Ég er þeirrar skoðunnar að það megi aðeins klípa í marga af þessum útlendingum sem koma hingað og aðlagast ekki þeirri menningu og því lífi sem hér er.

Í gær var mér boðið á vorhátíð í leikskóla í Stadtlohn, það var hún Ásthildur vinkona mín sem bauð mér. Hún er sex ára. Þar voru mætt afar og ömmur helmings allra krakkanna á sólskinsdeildinni hennar og ég og mamma hennar Ásthildar því hún á enga ömmu eða afa hér. Þetta var mjög vel gert, mæður barnanna voru búin að undirbúa kökur og hella upp á kaffi og hátíðin byrjaði á því að allir settust við litlu leikskólaborðin og fengu sér hressingu. Svo var farið út á leikvöllinn í þetta líka æðislega vorveður og völlurinn skoðaður. Hann er mjög skemmtilegur, þar voru ýmis, ja það er spurning hvað maður á að kalla svona, "hljóðfæri", búið að setja bjöllur á sleða og svo látið band með ásláttarverkfæri renna yfir, þá hljómaði bjölluhljóð. Svo var búið að setja upp mismunandi stóra diska á skjöld á vegg og hægt var að slá á þá með skeið og þá kom mismunandi hljóð. Svo var "xylofon" lóðréttur á grind sem hægt var að slá á og margt fleira í þessum dúr. Mjög skemmtilegt. Fyrir utan að sjálfsögðu hefðbundin leiktæki eins og rólur, kastali, kofi, klifrugrind, skip, búr þar sem eiga að koma kanínur, lítið vatn (með grind yfir þannig að ekki var hægt að detta ofaní) með gullfiskum og margt margt fleira. Í lok hátíðarinnar voru börnin svo með skemmtiatriði og allir voru með, við skemmtiatriðið áttu áhorfendur að syngja lög sem voru á blaði sem við fengum, allir virkjaðir til að taka þátt. Áður en við fórum heim fengum við svo gjöf frá krökkunum og það var páskagras í potti með föndruðu blómi á og börnin áttu að hengja borða, hvert barn einn borða á tré sem var í garðinum til að lokka vorið til okkar. Í heild mjög vel heppnaður dagur og gaman að fá að taka þátt með Ásthildi og mömmu hennar. Myndin er af borðskortinu sem ég fékk og blóminu en því miður þá klikkaði myndavélin þegar ég var á leikskólanum, þannig að ég gat ekki tekið neina mynd og ég gaf henni (myndavélinni) einn á´ann þegar við komum heim og þá allt í einu var í lagi með hana!!!

3 Comments:

Blogger Bippi said...

Það er alltaf gaman þegar að "áhorfendur" eru gerðir að virkum þátttakendum. Mætti gera meira af því;)

Vonandi hefur þú það gott Helga mín, ég dreymdi þig svo illa...:o/
En er það ekki yfirleitt mótsagnakennt með draumana;)

12:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég hef það fínt Heiðrún mín, vaknaði reyndar nokkrum sinnum við eigin hrotur í nótt en það er nú ekkert nýtt!

kveðja Helga

1:07 e.h.  
Blogger Bippi said...

Það var nú gott að heyra Helga mín;)

1:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters