laugardagur, maí 20, 2006

Atli Þór Agnarsson stúdent í dag

Til hamingju með útskriftina elsku bróðir. Þá erum við öll systkynin orðin stúdent. Þetta er þriðja útskrift Atla á tveimur árum. Fyrst útskrifaðist hann sem smiður úr fjölbrautarskólanum, svo eftir sveinsprófið og svo núna sem stúdent. Frábært hjá honum. Það er smá útskriftarboð fyrir nánustu heima núna og auðvitað mundi ég vilja vera með í því en maður verður að bíta í það súra epli að missa af vissum hlutum þegar maður býr erlendis. Það verður örugglega gaman hjá þeim í kvöld og eflaust enginn áhugi á að horfa á Eurovision.....

3 Comments:

Blogger Helga said...

Já takk fyrir síðast líka, ég á sjálf svona barnapíu síðan Nína var lítil.....

Njóttu Eurovision líka í kvöld Inga mín....

9:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með áfangann Helga mín og bróður þinn líka:)
Þú ert þá væntanlega mát yfir því að Finnar skyldu sigra keppnina! Ég hef nú lítið séð af þessu hér en einhverjir Ástralir sáu greinilega undankeppnina í sjónvarpinu og voru að hlæja af því að Silvía Nótt hefði verið púuð niður og það hefði litið út fyrir að henni hefði verið slétt sama um það og haldið sínu striki. Ég var að reyna að útskýra húmorinn hjá henni, vona bara að það hafi tekist.
Vona allavega að þú hafir skemmt þér vel yfir keppninni.
Eurovision kveðjur frá Ástralíu

12:52 f.h.  
Blogger Bippi said...

Til hammó með lilla bró!!

Mér finnst bara svo stutt síðan að Atli var svona lítið skott sem fylgdist vel með öllum samræðum hjá þeim eldri;)

Frábært hjá þér Atli að vera búinn að útskrifast þrisvar. Sumir útskrifast aldrei, hugsaðu þér!

2:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters