mánudagur, maí 08, 2006

Litli Vísir

Finnst mér ótrúlega fyndið, kannski ég skíri strákinn minn þetta??? Nei smá grín en söguna í kringum þetta er hægt að lesa hjá þokkalega pirruðum rokkara bróður mínum Óla.

Hjá okkur gengur allt sinn vanagang, ég reyni að draga djúpt andann og láta allt stress ekki snerta mig en það gengur hálf erfiðlega. Ég ætla að strembast við að fara í þetta próf í næstu viku og eins og próf eru þá stressa þau þótt maður sé búinn að ákveða að gera sitt besta og meira geti maður ekki, metnaðurinn er bara þannig að viti maður ekki nóg verður maður órólegur, amk er ég þannig en ég hugsa nú fyrst og fremst um óléttuna og ekki um prófið því það er ekki svo mikilvægt.

Á föstudaginn byrjuðum við hjónin á óléttunámskeiði, ég sé mjög eftir því að hafa ekki farið á svona námskeið þegar ég var ólétt af Nínu. Þetta eru í það heila sjö skipti og makar mega koma með í þrjú skipulögð skipti af þeim. Ég held að þetta hjálpi mjög í fæðingunni og auki sjálfstrú manns á því að maður komist á góðan veg í gegnum fæðinguna. Ég er með mjög erfiða fæðingu að baki og ég er staðráðin í því að ætla að gera margt öðruvísi í þessari fæðingu en í fyrri. Ég ætla til dæmis ekki að leggjast, ég hef annars lagst mjög snemma sem hindrar mjög framgang fæðingarinnar. Já byrjum á því! En þetta er góður hópur sem við erum í, ég er þriðja yngsta konan af átta með elsta barnið!!! Þrjár kvennanna eru 37 ára og óléttar af fyrsta barni og þrjár eiga barn fyrir. Ein er ólétt af tvíburum og hún er næstyngst eða 29 ára og komin 29 vikur og verulega sver um sig. Ég leyfi ykkur svo að fylgjast með hvað við gerum. Í fyrsta tímanum gat hver og einn skrifað á litla post it miða væntingar til námskeiðsins og var margt skemmtilegt sem kom þar fram. SVo fór ljósmóðirin í gegnum fæðingu, með frábærar teiknaðar myndir sér til halds og trausts.

Nú svo gerðist óhapp á laugardeginum, Nína var eins og reyndar alla síðustu daga, allan daginn úti að leika og kom svo heim um hálf sjö með slasaða hendi. Ég fór svo með Nínu til læknis í dag því hún hafði hlíft hendinni mjög alla helgina og mér leist orðið ekki á blikuna, ef hún væri brotin eða eitthvað. Amk var tekin röntgenmynd og hún þurfti að fá gifs. Hægri hendi, en hún nær að skrifa og nær að spila á fiðluna. En verður að sleppa reiðtímanum á morgun! Hún er með verki í ulnliðnum þegar hún hreyfir hann og nú er þetta skárra, í gifsinu.

Ég fór svo á kvennaklúbb á laugardagskvöldið og sátum við úti á klúbbnum okkar og vorum sáttar við lífið og tilveruna. Alltaf gaman að hitta þessar skvísur sem eru með mér í klúbb, við mættum sex af átta, það er alltaf einhver sem kemst ekki.

Á laugardagskvöldinu var svo nágrannapartý hjá okkar nágrannahverfi. Grillaðar Bratwurst og drukkið bjór úti á götu, ég var ekki viðstödd en Alex og Nína fóru og höfðu gaman af. Mér finnst það mjög skemmtileg hefð að nágrannarnir hittist og geri eitthvað saman, það var búið að fara í hjólreiðatúr um daginn sem við því miður tókum ekki þátt í.

Það væri gaman að gera svona nágrannafélag á Akranesi þegar við erum flutt í nýja hverfið okkar. Kannski nær maður að búa til svona stemmingu eins og ég vissi að væri til staðar amk á Víðigrundinni á Akranesi, kannski líka víðar.

Í kvöld var ég svo á kynningarfundi fyrir brjóstagjöf, margt áhugavert sem sagt var þar. Jæja ég ætla að kíkja á sjúkinginn, eigið ánægjulegt kvöld, ykkar Helga

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Leiðinlegt að heyra með Nínu, hún verður vonandi fljót að ná sér.
Fáðu svo leiðbeiningar hjá ljósunum okkar um góðar fæðingarstellingar, Hildur gerði amk mína seinni fæðingu að algjörum draum :)
kv Systa

9:59 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég fór á mömmu námskeið þegar ég gekk með Kidda það hjálpaði mér heilmikið sérstaklega þó að læra öndunina.
Svo fór ég aftur úti í Þýskalandi og Jú einmitt þetta voru mest konur eldri en maður sjálfur með fyrsta barn!

Góðan bata hjá Nínu, við hjónin erum einmitt búin að vera upp á spítala með þau tvö yngstu, fyrst datt Bjarki á andlitið slapp við nefbrot en blæddi ekkert smá, og svo brenndi Heiðdís mín sig en slapp vel.
kv.GBB

10:20 e.h.  
Blogger Helga said...

Já ég ætla að notfæra mér ljósurnar í hópnum okkar, ég er viss um að þessi fæðing á eftir að verða algjör draumur, híhí.

Takk fyrir Nínu stelpur, hún er bara frekar óheppin að lenda í þessu þessi krús.

Leiðinlegt að heyra með Bjarka og Heiðdísi, vonandi eru þau á góðum batavegi.

En svona námskeið eru pottþétt til góða! Ég mæli með þessu, Alex er líka svo virkur þátttakandi í æfingum og svona, ég ætla að fá mér leikfimisbolta eins og óléttar konur sitja oft á, mér finnst hann frábær.

10:39 e.h.  
Blogger Bippi said...

Fyndið, ég hef aldrei heyrt þetta með litla vísi en ég var líka bara smábarn þegar að þeir voru saman í úrabúðinni.
En hvað varst þú þá Helga mín....þú varst svo oft í búðinni.....kannski sekúnduvísir??

Gangi þér vel áfram í óléttunni Helga mín.....ég fæ alveg hroll við að lesa um fæðingar....það sem við kvenfólkið þolum!!!!

12:19 e.h.  
Blogger Helga said...

Góður þessi með sekúnduvísinn, maður veit það ekki....

En í sambandi við fæðingar þá ætla ég sko að gera allt rétt núna!!!

2:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Helga mín
Til hamingju með afmælið þitt. Vonandi verður dagurinn góður:)
Knús og koss

4:43 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir það Krissý mín

Kveðja
Helga

9:19 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters