Sumarið er komið
Það má bara ekki verða strax of heitt, hvað geri ég þá með minn ólétta líkama? Það vill til að hitastigið í gamla húsinu sem við búum í helst kalt ef maður passar sig að opna ekki glugga og dregur gluggahlífðarnar fyrir á efri hæðinni. Í gær fór hitinn í 25 stig, þetta var bara ótrúlegt, Nína var úti allan daginn, dreif sig í pils og tásluskó eftir skóla og sofnaði sæl á sínum kodda um kvöldið. Svona dagar eru yndislegir. Ég fór á hjólinu niður í bæ, það er auðveldara fyrir mig að hjóla heldur en labba þegar það er svona hlýtt í veðri.
Verst að útisundlaugin hér í bænum okkar opnar ekki fyrr en í júní. Það er verið að byggja nýja útisundlaug, glænýja, með alls kyns nýjungum og flottum laugum. Það verður sko gaman að fara í hana og liggja á handklæðinu sínu í grasinu, í skugga vissulega og láta fara vel um sig. Þangað til verðum við að vera duglega að fara í nágrannabæ í útisund, hjá okkur er bara sundhöll og það er eins og að fara í bakarofn þegar það er svona yndislegt veður. Spáin er góð fram á sunnudag, er ekki búin að sjá lengur en þangað.
Alex hjólar á hverjum degi í og úr vinnu, sofnar líka sæll og glaður á sínum kodda á kvöldin, híhí...


4 Comments:
ÞAð er frekar fúlt hérna megin núna með rigningu! Annars byrja dagarnir yfirleitt mjög vel og ég fyllist bjartsýni og hendi þvottinum út á snúru í blíðskaparveðri.
Undanfarna daga hef ég þurft að hlaupa út til þess að bjarga þvottinum frá bleytu:o)
Það lítur út fyrir sól og blíðu eitthvað fram í næstu viku en þá fer okkur líka að vanta vökvann fyrir gróðurinn :-þ
Ég tók einmitt eftir þessu þegar við vorum á Akranesi um páskana að dagarnir byrja mjög oft yndislega og enda yndislega en það sem er þar á milli, það er oft miður skemmtilegt.
Já, einmitt. Best að fara í göngutúra á morgnana eða á kvöldin;)
Það er gott að allir á heimilinu sofna sælir og glaðir. Það var bara vonandi! :)
Bið að heilsa héðan úr rigningunni.
B.kv. Þóra
Skrifa ummæli
<< Home