fimmtudagur, júní 15, 2006

Faðernistilfinning

Heimsmeistarakeppnin breiðir út samkennd á meðal íbúa, hvort sem þeir eru Þjóðverjar eða annara landa "kvikindi". Fjöldinn allur af fólki hefur keypt sér fána Þýskalands og halda á honum á meðan á leik stendur eða eru með svona bílhaldara og er fáninn þá alltaf fastur við bílinn. Þetta skapar vissa stemmingu hér í Þýskalandi og fjölmörg viðtöl við ungt fólk sýna það að þeim finnist þetta skemmtilegt, það sé gaman að finna fyrir svona samkennd og að fótboltakeppnin leyfi "loksins" sagði einn ungur drengur í viðtali í fréttatímanum í gær hálfgerða faðernistilfinningu.

Strax eftir að unga fólkið hafði verið sýnt, það voru ungir með þýskalandsfánatrefil, með fána í hendi eða á bílnum sínum. Kom umfjöllun frá fréttakonunni um það að umræða væri í landinu um þennan faðernissinna sem fótboltakeppnin hefði komið upp. Svona "ástand" hefði ekki ríkt í landinu í mjög langan tíma. Sumir fjölluðu um að þetta væri of mikið af því góðu. Fánaverksmiðjur hafa aldrei framleitt eins mikið af fánum eins og núna.

Hvað er málið, ég meina við sem Íslendingar erum mjög þjóðarstolt og ánægð með að vera Íslendingar. Þjóðverjar hafa hins vegar þá tilfinningu að þeir megi ekki sýna þjóðarstolt né vera ánægðir með að vera Þjóðverjar. Er ekki kominn tími til að gleyma þessu núna og leyfa ungmenni dagsins í dag að gleðjast yfir árangri þýska liðsins í fótboltakeppninni.

Í gær brutust út óeirðir á milli Þjóðverja og Pólverja á meðan á leiknum stóð, en er það eitthvað óvenjulegt. Lögreglan náði fljótt tökum á ástandinu og eftir leikinn voru allir vinir og skemmtu sér saman. Ótrúlegt að ná að skora á 92.mínútu...... sei nó mor.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta var alveg frábært hjá Þjóðverjum og ég gladdist með þeim þegar það var flautað af. England í dag og sama sagan hér, það snýst allt um fótboltann og fánar á hverjum bíl. Við fórum meirað segja í veðbankann áðan eins og góðum Bretum sæmir og lögðum nokkur ´bet´. Mamma átti ekki til orð en tók samt þátt! Ef við vinnum tvö núll og John Terry skorar fyrsta mark þá verð ég rík kona!

Svana

2:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég á ekki til orð yfir þig Svana, hvað þú ert köld kona, það er bara vonandi að þú farir ekki af stað í miðjum leik svo þú missir ekki af spennunni. Frábært ef þú nærð að verða rík kona, það væri óskandi.

Bestu kveðjur til hjálparans
kveðja Helga

3:50 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að Þjóðverjar standi sig svona vel og það er um að gera að vera stoltur af þjóðerni sínu og komin tími til að sættast við fortíðina.

2:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters