laugardagur, júní 03, 2006

Hvítasunnan

Ég man það þegar ég var á sveitaballaaldrinum og Hvítasunnuböllin voru og hétu. Jesús hvað það var gaman, maður fór í rútu frá Skaganesti og var með bland á brúsa og svo var bara skellt sér á ball í sveitina. Þau böll voru ekki alltaf á Hlöðum, líka ennþá lengra, ég man ekki einu sinni hvar. Haldiði að maður sé farinn að kalka. En þetta voru ótrúlega skemmtileg böll og oftar en ekki hitti ég Bjössa frænda í Hrepp, kannski maður fari að hafa samband við hann aftur útaf hestamálum Nínu. Held að hann sé í tamningum og einhverju hestastússi.

Ég óska öllum þeim sem fara á hvítasunnuball góðrar skemmtunar og farið varlega í umferðinni elskurnar.

1 Comments:

Blogger Bippi said...

Ég held að Hvítasunnuböll séu löngu liðin tíð, allavega sveitaböll;o)
Já ég man (þó svo að ég muni kannski ekki mikið frá þessum böllum) að það var farið í Lyngbrekku og Logaland;o)

5:42 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters