þriðjudagur, maí 30, 2006

Hún á afmæli í dag, hún Þóra....

Elsku besta systir, til lukku með daginn í dag. Við óskum þess að þú eigir eftir að eiga skemmtilegan dag í faðmi vina og fjölskyldu, kannski kaffi eða matur í kvöld...gaman, gaman.... Njóttu nú seinustu daganna áður en þú byrjar á fullu í vinnu og verkefni....


Við vorum í burtu alla helgina, það var mjög gaman en erfitt fyrir svona ólétta konu. Ég verð eflaust nokkra daga á sófanum að jafna mig þegar Eveline og Jan eru farin. Annars gengur allt vel, maginn vex ótrúlega vel og hreyfingar eru á sárskaukamörkum.... Nú eru sex vikur eftir og allt getur gerst.

Ég ætla að fara að byrja að láta stinga mig með nálastungu og drekka hindberjablaðatee, allt til að undirbúa líkamann betur fyrir fæðinguna. Blóðprufur allar í lagi sem betur fer þannig að við sjáum bara hvað setur.

Í dag er stór dagur, Nína fær verðlaunin, ég ætla að setja inn nokkrar myndir á næstu dögum. Bestu kveðjur
ykkar Helga

2 Comments:

Blogger Bippi said...

Þú lofar að fara vel með þig Helga mín!! Taktu þér þinn tíma í að hvíla þig;o)

1:24 e.h.  
Blogger Helga said...

Já ég geri það, það var bara svo mikið um að vera um seinustu helgi, þá gleymir maður sér alveg.

En kúli litli lætur sko alveg vita af sér....

11:12 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters