Breytingar
Ég er ekki smeyk við breytingar. Breytingar koma með eitthvað nýtt með sér og spennandi og hafa áhrif á hvern og einn. Breytingar eru til að notfæra sér, til að grípa tækifæri og gera eitthvað sem er óvenjulegt og spennandi. Á næstu vikum verða breytingar hjá okkur. Við verðum fjögurra manna fjölskylda. Það er mikil breyting. Það verður svakalega spennandi, við erum búin að óska okkur þetta í mjög langan tíma og loksins er óskin okkar að rætast. Spennan er að magnast og allir eru spenntir með okkur. Nína er líka orðin mjög spennt að fá systkini þrátt fyrir að það eigi eftir að þýða mestu breytinguna fyrir hana.
Nú er tengdamamma búin að vera í heimsókn með manni sínum síðan á sunnudag og það er líka mjög mikil breyting. Það er öðruvísi breyting. Það er ekki alltaf auðvelt af vera með gesti en við erum ánægð að þau komi í heimsókn til okkar og gefi sér tíma fyrir okkur en það fylgir æsingur og smá vesen ef ég má taka svo til orða. Ég ætla ekki að fara nánar í það en það reynir á mann og nú má hver ímynda sér sinn þátt.
Öll erum við sérstök á okkar hátt og það er yndislegt. Hver og einn á að halda sínu merki (eins og stóð á gamla nafnskýrteininu) og vera glaður með sig. Nína er búin að vera í þemaviku í skólanum í tvo daga. Það er búið að vera að kenna bekknum að rífast á sanngjarnan hátt. Það voru allir nemendur teknir fyrir og hver mátti segja það sem hann vildi segja, jákvætt og neikvætt. Nína kom heim fyrri daginn af tveimur og átti erfitt að taka á móti gagnrýninni sem hún fékk í bekknum. Nokkrir strákar hefðu sagt að hún talaði "alltaf" um Ísland. Henni fannst þetta ósanngjarn því stundum segir hún bara eitthvað, eins og í gær var jarðskjálfti á Íslandi og eitthvað svona. Ein vinkona Nínu réttlætti Nínu og sagði að henni fyndist bara gaman að heyra um Ísland! og svona gekk þetta báða dagana þar til allir nemendurnir voru afgreiddir. Kannski allt í lagi að gera svona en sem betur fer bara í þetta eina sinn..... Setti inn myndir, njótið heil...


4 Comments:
Æi greyið.. auðvitað getur verið erfitt að taka gagnrýni sama hvernig hún er. En oftar en ekki er gott að fá viðhorf annarra af því að sjálfur getur maður kannski ekki séð það sem laga má. Þetta gefur manni öðruvísi sýn á hlutina.
Þetta er það sama og að vera hreinskilinn myndi ég segja. Þó svo að það sé erfitt að heyra eitthvað stundum þá þakkar maður fyrir að einhver hafi brjóst til þess að segja það.
En samt getur gagnrýni á sjálfan persónuleika manns verið erfið. Þá er líka oft ráð að taka það ekki til sín heldur reyna að læra af því að allir eru misjafnir og þó svo að manni líki kannski illa við eitthvað í fari einhvers annars, þá er það hluti af manneskjunni og þá óumflýjanlega lærir maður að viðurkenna þetta í fari manneskjunnar og að lokum þykja jafnvel vænt um það.
Hafið það gott.. skemmtilegar myndir :)
B.kv. Þóra
Sæl Helga
Það er ekki hægt að segja annað en það séu spennandi tímar framundan hjá ykkur. Þetta verður breyting fyrir Nínu en á jákvæðan hátt. Hún fær það stóra hlutverk að verða stóra systir og því hlutverki fylgir mikil ábyrgð, getur verið skemmtilegt á köflum og erfitt. Sem betur fer eru flest öll börn gædd þeim hæfileika að aðlagast nýjum aðstæðum vel. Ég er viss um að hún eigi eftir að standa sig vel í nýja hlutverkinu.
kær kveðja
Christel
Takk stelpur, skemmtilegir pistlar sem þið skrifðuð ég er viss um að Nína á eftir að standa sig vel þessi elska. Hún er stundum að spyrja mig núna hvort hún geti ekki gert eitthvað fyrir mig sem mér finnst mjög fallega gert af henni. Svo strýkur hún mjúklega yfir maga minn....
Kveðja Helga
Nína á pottþétt eftir að standa sig vel, það þarf bara að passa að hún fái að vera virkur þátttakandi strax frá upphafi og vera ekki stressaður í hvert skipti sem hún kemur nálægt barninu. (Sumir eru svoleiðis)
Mér finnst mjög gott að kenna krökkum að rökræða. Mér finnst það vanta svolítið inn í skólakerfið hérna heima. Íslendingar kunna í mörgum tilfellum ekki að rökræða og taka allt svo persónulega.
Ég er samt ekki viss með þetta með að taka einn og einn fyrir.....mér finnst frekar að þau hefðu átt að taka fyrir einhver málefni!!!
Skrifa ummæli
<< Home