Hvað á maður að gera við svona veður!
Þetta er nú meira veðrið. Það er bara búið að ganga á með skúrum og stormi liggur við að maður segi. Svona mikið rok, (vindur á Ísl.mælikvarða) hefur sjaldan verið eins lengi eins og núna. Þetta fer alveg með sumarskapið sem ég var komin í. Vonandi að það létti til bráðlega því við erum á leið í smá stuttferð með stórfjölskyldu Alex um helgina. Á morgun er frídagur í skólanum og á föstudeginum er líka frí þannig að þetta verður löng fríhelgi. Við förum á svona sveitagistiheimili þar sem eru fullt af húsdýrum og sundlaug í kjallaranum (ekki fyrir dýrin) og ætlum að hafa það ægilega kósí, 20 manns í það heila.
Spáin lítur samt ekki vel út, rigning, þrumur og rok. Gaman, að fara í frí til að vera inni að spila spil. Við förum vel byrgjuð af innispilum, teikniblokkum, tússum, tölvuspilum og fleiru skemmtilegu.
Í næstu viku ætla svo tengdamamma og maður hennar að koma og vera í vikuheimsókn hjá okkur, það verður gaman að skreppa með þau á markað til Hollands þar sem maður hennar er Hollendingur. Nína er í skólanum alla daga vikunnar þannig að við tökum okkur þetta fyrir hendur á laugard.
Nína fékk bréf í gær frá bankanum sínum, þess efnis að hún hefði unnið til verðlauna fyrir mynd sem hún teiknaði í skólanum. En bekkurinn tók þátt í landskeppni í teikningum um ákveðið þema og krakkarnir völdu svo nokkrar myndir sem átti að senda inn fyrir hönd bekkjarins og hennar mynd var valin og svo vann hún, við erum ótrúlega stolt af henni en hún er svo dugleg að teikna. Þetta voru Huskys hundar að hlaupa, maður sá alveg að þeir voru á fullri ferð og svo voru þar fleiri dýr sem voru á myndinni. Verðlaunaafhendingin er næsta þriðjudag, spennandi ekki satt.


7 Comments:
Heyrðu hér á klakanum erum við að fenna í kaf og er ekkert lát á, á reyndar að skána um helgi bændur eru í vandræðum geta ekki sett lömbin og kindur út og svo voru þeir að óttast um varp hjá fuglum og líka gróðurinn okkur sem var komin af stað.
Það hefur ekki komið svona veður í Rkv síðan á 19 öld:-O
Maður á bara ekki orð þannig vertu ánægð með rokið Helga.
GBB
Heyrðu ég samhryggist bara útaf veðrinu, þetta er örugglega verst á norðurlandi ekki satt. Þetta er nú meiri óheppnin. Alltaf kemur þetta veður manni í opna skjöldu.
Baráttukveðjur
Helga
Jú það er verst hérna fyrir norðan þetta er nú bara fyndið, sjá fólk með húfur og vettlinga bara eins og í jan(-;
Allir búnir að skipta yfir á sumardekkin en þetta verður fljótt að fara-vonandi.
Reyndar er ég að fara úr snjónum um helgina í Hveragerði(-:þannig ég fer bara á sumarskónum hí hí
kv frá Húsó. GBB
En flott hjá Nínu, hún er svo góð að teikna, krúsídúllan. Til hamingju til hennar! :)
Já það er satt. Þetta veður hérna fór líka alveg með sumarskapið sem var komið eftir hitabylgjuna um daginn. Ji minn eini!
B.kv. Þóra sys
Hæ, en frábært hjá Nínu, gaman að vinna til verðlauna. Maður var nú aldeilis kominn í sumarfílinginn og svo bara rigning, hlýtur að fara að koma betra veður í Danmörku og Þýskalandi :) Góða skemmtun um helgina.
kveðja
Christel
En gaman, Nína til hamingju með verðlaunin. Ég sýndi H.Egg myndir sem hún teiknaði hér heima um páskana og henni fannst þær alveg ótrúlega flottar ;). Góða skemmtun um helgina, vonandi rætist úr veðrinu.
Vá, glæsilegt hjá Nínu!!! Það væri nú gaman að sjá einhverjar myndir eftir hana hérna á síðunni;)
Vonandi fer veðrið að skána hjá ykkur....
Skrifa ummæli
<< Home