þriðjudagur, júní 06, 2006

Lífspróf

Það er svo furðulegt þetta líf, það setur mér stundum svona lífspróf. Eitthvað sem ég þarf að gera, en er ekki vel við að gera, þá er ég að meina eitthvað sem maður virkilega þolir ekki, finnst ógeðslegt... eitthvað sem er ekki að þrífa glugga, eða gera eitthvað sem er bara pínu leiðinlegt en sem maður neyðist líka til að gera.

Svona var í dag.

Alex er ekki heima!

Þá neyðist ég til að gera eitthvað sem ég get ekki beðið hann um að gera :-)

Það sprakk á einu dekkinu af tveimur á hjólinu hennar Nínu!!!! Ég er ólétt í 35.viku!!! Það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri að gera við hjól, þannig að nú voru góð ráð dýr. Ég kenndi Nínu að gera við hjól (kann það varla sjálf, en gekk mjög vel að kenna henni það og hún lagaði hjólið sitt sjálf). Hún fór meira segja í prufuhjólreiðatúr núna í kvöld til að athuga hvort það hefði gengið. Og viti menn, allt í lagi með hjólið. Í fyrstu ætluðum við ekki að finna gatið, ég sagði henni að hringja í pabba sinn til að segja henni raunir okkar (kannski mundi hann koma heim í næsta flugi til að laga hjólið). En hún reddaði þessu flott stelpan, komin önnur hugmynd fyrir fjáröflun hjá henni.....

Mál númer tvö sem ég neyddist til að gera í dag var að leggjast flöt á magann bak við klósettið uppi, þeir sem þekkja til geta rétt ímyndað sér hvernig þetta var fyrir mig. Og þrífa undir hlíf sem pípulagningamaðurinn tók í dag því það virðist vera eitthvað ólag á salerninu hjá okkur ÓGEÐSLEGT!!!!!... Ég er að fara fram á mikla samúð frá ykkur lesendur góðir, vonandi áttið þið ykkur á því. Það ógeðslegasta sem ég geri er að þrífa klósett og þetta var verra en það versta!!!

Vissulega hringdi ég í Alex og sagði honum frá raunum okkar Nínu í dag, hann er vitanlega mjög stoltur af konunum sínum og á eftir að launa okkur þetta þegar hann kemur heim!!!!!

Fínt bara segir Nína svo og hlær þegar hún les bloggið, yfir kvörtun mömmu sinnar!!!!!...

7 Comments:

Blogger Bippi said...

Ég skal vorkenna þér Helga mín. Verst að vera ekki hjá þér til þess að geta hjálpað þér eða þá bara knúsað þig;)

Flottar myndir hjá ykkur, gaman að skoða þær!!

Gangi ykkur vel og njótið þess að vera bara tvær, kannski er þetta í síðasta skiptið sem það gerist;)

1:27 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þvílíkt sem þið standið ykkur vel. Ég hefði sagt Nínu að labba og ekki einu sinni reynt. Ég hætti að reyna svona hluti þegar ég ákvað að ég gæti allt þegar ég var búin að negla helminginn af úti-jólaseríunni upp fyrir ein jólin. Þá leit ég á frænku mína og sagði að víst ég gæti þetta þá hefði ég ekkert við þennan karl lengur að gera. Í þeim töluðu orðum fékk ég flís í augað og þurfti niðrá spítala til að ná henni úr! Núna bíð ég bara eftir að Haddi komi heim:)

1:47 f.h.  
Blogger Helga said...

Nei maður deyr nú ekki ráðalaus, ég er líka svo ansk... þrjósk, er ekki til í að láta í minni pokann fyrir einhverju hjóli eða klói...
Klóið er komið í lag en hjólið var loftlaust í morgun þannig að vinkonan fékk hjólið mitt og ég ætla með drusluna í viðgerð, #$%$$###***

Takk fyrir að vorkenna mér, knús og koss, ein sem deyr ekki ráðalaus!

Nei það er nú ekki gott að þú fékkst flís í augað Krissý mín við að vera karlmannslaus við að setja upp jólaseríuna, en það eru nú takmörk fyrir því sem við konur eigum að taka okkur fyrir hendur!!! Ég mundi amk ekki fara í stiga og negla upp jólaseríu úti á húsinu. Þú ert hetja!

9:27 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mínar samúðarkveöjur Helga mín, ég þurfti að reyna ýmislegt þegar Siggi var á sjónum, maður reddar sér auðvitað, maður er ekki ósjálfbjarga þó maður sé karlmannslaus, en
það er töluvert þægilegra að hafa þessa karla hjá sér ;)
kv Systa

11:41 f.h.  
Blogger Karen said...

Uss uss illa farið með góða konu ;)
En gott að þetta bjargaðist allt!!

12:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Helga,
það er líka mjög erfitt hjá mér í Madrid. Maður veit ekki hvert á að snúa sér við 38 stiga hiti. Uffff!!
En auðvitað skal ég verðlauna ykkur þegar ég kem heim.
Kærar kveðjur

10:16 f.h.  
Blogger Helga said...

Þú ert nú meira krúttið... hlakka til að þú komir heim.

2:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters