mánudagur, júní 05, 2006

Nú fer aldeilis að styttast í sumarfrí í skólanum hjá Nínu

Þessi vika er stutt, bara þrír skóladagar, næsta vika er líka stutt, bara þrír skóladagar og svo er ein heil vika eftir. Ellefu skóladagar er nú ekki mikið. Æi hvað ég skil skólaþreytu og löngun eftir fríinu góða. Nína fer svo strax á laugardeginum eftir síðasta skóladag í viku reiðnámskeið á sveitabæ með Mónu vinkonu sinni. Það á örugglega eftir að verða rosa stuð hjá þeim, á hestbaki á hverjum degi og í sveitarrómansinum. Alveg Nína í botn, dýr og náttúra.

Núna eru miklar pælingar hjá Nínu um peninga. Hún er mikið að velta fyrir sér hvað það kosti að byggja hús og hvort maður eigi eftir peninga, eftir að vera búinn að byggja. Hvernig það sé með skuldirnar og svo framvegis, mikið í gangi.

Það er búið að vera tívolí í bænum síðan á föstudaginn og Nína er búinn að fara laug, og sunnud. og hafa mikið gaman af. Bara verst með peningana..... Núna ætlar hún að reyna að fá vinnu, barn að passa eins og vinkona hennar eða eitthvað þvíumlíkt. Hún þreyf bílinn fyrir okkur í gær og fékk laun fyrir það, enda gerði hún það mjög vel. Það er svo gaman í bíó og það er svo gaman í tívolí og það er svo gaman að fara útí bæ og kaupa eitthvað með vinkonu sinni. Mér finnst ekki langt síðan að ég var á þessum aldri og skil því vel hvað gengur á í höfðinu hjá þessum stúlkum.

Við mæðgur erum einar heima fram á fimmtudag, Alex er í Madrid, 35 stiga hiti. Það væri nú ekki amalegt að vera þar líka, í fríi gefur að skilja, ekki að vinna eins og hann! Heyrði í honum í morgun og það gengur vel nema hvað það er heitt, of heitt til að vinna.... Við verðum duglegar að hvíla okkur hér heima og hafa það rólegt, horfa á mynd eða tvær og hafa gaman saman.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já vertu nú dugleg að hvíla þig Helga mín og njóttu þess að vera ekki í 35 stiga hita svona ólétt. Þú værir örugglega að hvíla þig í köldu baði ef það væri svona heitt. Svo er ég alveg sammála þér með hvað það er stutt síðan við vorum jafngamlar Nínu, það styttist í að hún nái okkur;=)

11:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters