Mikið nýtt
Hæ hæ, það eru nokkrir hlutir sem ég þarf að kynna fyrir ykkur í sambandi við internetið hjá okkur fjölskyldunni.
Alex er búinn að útbúa myndasíðu á blogginu undir slóðinni http://familieeck.blogspot.com það eru margar skemmtilegar myndir þar af okkur og öðrum. Kíkið endilega á síðuna, ég vona bara að hann haldi þessu við.
Svo er ég búin að gera barnalandssíðu undir þessari slóð, það er ekki komið nafn því drengurinn er jú enn ófæddur og ónefndur. http://barnaland.is/barn/48503/ það er nú ekki margt að skoða en nokkrar óléttumyndir af mér og svona. Ég er með leyniorð á síðunni og það er eftirnafnið hans Alex. Fyrir þá sem ekki vita það er um að gera að skrifa mér og ég læt ykkur þá hafa það. ÉG gerði þessa síðu í gærkvöldi, seint vel að merkja og það eru strax komnir yfir 150 sem hafa skoðað, ég er ekki búin að láta neinn vita. Þetta er svol. sérstakt finnst mér en auðvitað gaman ef maður fær stutta orðsendingu hverjir þetta eru. Óli nefnir þá sem ekki vilja skrifa komment eða láta vita að þeir skoði skápaskoðarar, það er alltaf nóg af svoleiðis fólki. Ég þykist nú vita að þið sem lesið þetta hjá mér þekkið mig öll, annars hefði maður varla áhuga á þessu sem ég er að opinbera hér, híhíhí...
Njótið vel og njótið dagsins í dag, ég bið að heilsa í hjúkkubrunchinn og ykkur hinum auðvitað líka.


3 Comments:
Svakalega líst mér vel á þetta allt saman. Gaman að geta fylgst með ykkur á fleiri vígstöðvum;o)
Þakka ykkur fyrir það, já ég er ekki alveg nógu klár í þessu með skápaskoðarana en það eru þeir sem ekki vilja að það sé vitað að þeir kíki, hvaða ástæðu svo sem þeir hafa fyrir því. Bróðir minn er sérfræðingur í þessu orði. Ég sá að þú hefur komist inn Inga Björk og takk fyrir ábendinguna með stærðina á myndunum, það er gott að það eru sérfræðingar sem aðstoða mann í þessu. Ég er líka ekki nógu ánægð með útlitið en hvernig kemst maður í þessi björtu og skemmtilegu útlit eins og sumir eru með?
Njóttu þess nú að þurfa bara að hugsa um börnin þín tvö....
Heiðrún það er bara óskandi að Alex haldi áfram að vera svona duglegur.
Ég kalla þetta alltaf skápalesara þegar fólk les en kommentar aldrei. Ótrúlega skrítið því að það er nefnilega fullt af fólki sem maður þekkir lítið eða ekki sem að les bloggið hjá manni. Við Óli hittum stelpu upp á skaga sem sagðist alltaf lesa bloggin okkar beggja og ég vissi ekkert hver hún var.
Skrifa ummæli
<< Home