þriðjudagur, júní 20, 2006

Mikið lifandis ósköp hefur mamma verið óheppin á Ítalíu

EFtir því sem mér heyrist hefði hún frekar verið heima hjá sér, það er nú ekki oft sem maður segir svona. En hún var bitin af einhverju/m sem hefur komist langt með að narta í fótlegginn. Atli sendi mér myndir en ég treysti mér ekki til að birta þær hér. Því miður. Hún er með bit í kring um vinstra augað, það er eins og hún hafi verið kýld. Á fótleggjum eru nokkur vessandi fjólublá sár á stærð við tíkall með dökkum blettum inní, sem er vonandi bara storknað blóð. Hún fékk sýklalyf og fullt af öðrum lyfjum á Ítalíu og var bitin áfram hverja nóttina sem hún var þarna. Þannig að nýjustu bitin eru síðan í fyrrinótt. Mér lá nú ekki á sama og hvatti hana til að kíkja á sjúkrahúsið, hefði nú frekar sleppt því þar sem einhver drengur var á vakt og hafði ekki hugmynd, hann hefði nú getað gefið henni steradreypi til að létta á vanlíðaninni, en nei, við skulum fylgjast með þessu, ómægot, en asnalegt, það hefði verið betra að kíkja bara á deild og láta vana hjúkku sinna sér. Búa aðeins um þessi vessandi sár og svona, hallærislegt! Vonandi fær hún betri þjónustu í dag hjá einhverjum heilsugæslulækninum, séu þeir ekki líka allir í fríi!!! Mamma gangi þér vel í dag í læknaveseninu.

8 Comments:

Blogger Bippi said...

Úff, það er ömurlegt að vera í fríi í útlöndum og lenda í einhverju svona.....ég sendi henni góða strauma....

10:17 f.h.  
Blogger Helga said...

Já þá er nú betra heima setið en af stað farið.... þú ert heppin að hafa sloppið á Spáni.

10:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er naumast að frú Sigríður er ljúffeng. Ég heyri að það eru ekki bara ítölsku karlmennirnir sem eru ágengir!

12:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Helga mín !
Ég ætlaði bara að láta þig vita að ég fylgist með þér, bíð spennt eftir stráknum.
Allt gott hér í Hveragerði reyndar búið að rigna síðan ég kom en það ver vonandi að skána.
Bið að heilsa fólkinu þínu.
kv. Greta B.

1:16 e.h.  
Blogger Helga said...

Gaman að sjá að þú fylgist með Greta mín, það verður ekki fyrr en eftir miðjan júlí. Hvernig er annars á náttúruhælinu?

3:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Faðernistilfinning: Ertu ekki að meina þjóðerniskennd?

B.kv. Þóra systir

3:58 e.h.  
Blogger Helga said...

Jú þjóðerniskennd.... það má ekki vera með svoleiðis tilfinningu hér, þá er maður nasisti. Þeir eru svo bældir Þjóðverjar yfir þessu öllu saman og það er svo mikil umfjöllun í fjölmiðlum útaf fánum á bílum og svona. Ég er bara glöð fyrir hönd Þjóðverja að þeir skuli vera stoltir af fótboltaþjóðinni.

5:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Her gengur bara vel er að nudda 10-11 á dag svol. mikið.
Er að fara að hitta liðið mitt á ættarmóti um helgina.
Já þjóðverjarnir standa sig vel á HM.
Gott veður í dag(-:
kv Greta.

10:35 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters