Loksins skólafrí
Í gær var síðasti dagurinn í skólanum fyrir sumarfrí hjá Nínu. Skóladagurinn byrjaði á guðsþjónustu og svo fóru þau í skólann og fengu einkunnirnar, Nína stóð sig rosalega vel. Fékk bara 2 og 3 í einkunn sem er rosafínt. 1 Er hæðs og 6 er lægst en 5 er fall. Það komast allir áfram, enginn sem þarf að taka upp bekkinn en þetta er í fyrsta sinn sem skólaár endar og enginn þarf að taka upp skólaár á þeim tíma sem Nína gengur til skóla hér. Ánægjulegt ekki satt. Þrír flytja þannig að þau verða 29 á næsta ári í bekknum svo lengi sem enginn nýr bætist í bekkinn.
Í dag fer Nína svo í vikudvöl á bóndabæ á svokallað hestanámskeið. Það verða tveir reiðtímar á hverjum degi og svo verður farið í sund, farið í leiki, gerður varðeldur og fleira skemmtilegt. Nína fer með Mónu vinkonu sinni og hún var að hafa áhyggjur af því ef bróðir sinn mundi fæðast að við mundum ekki láta hana vita. En ég fullvissaði hana um að við mundum strax ná í hana.
Í dag er komin aftur hitavella, það er spáð 30 stiga hita um helgina og áframhaldandi góðu veðri næstu viku. Eigið góða helgi og takið lífinu með ró.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home