sunnudagur, júlí 23, 2006

Alex er 35

Elskulegur eiginmaður minn á afmæli í dag. Hann er orðinn 35 ára sem er nú ekkert til að skammast sín fyrir. Tveggja barna faðir og 35 ára, frábær árangur á 10 dögum. Eiginlega var hann búinn að óska sér barn í afmælisgjöf en ég óþolinmóð eins og ég get verið gat bara ekki beðið, híhí....

En við áttum saman æðislegan dag í dag, pabbi hans Alex og eiginkona komu og Christoph bróðir hans með kærustu sinni Claudíu ásamt nágrönnum sem kíktu í freyðivín eða mat og bjór. Allt bara ísí og allir ánægðir nema Balthasar greiið sem vissi ekki hvað hann átti að gera fyrir gestum, þannig að hann hélt sig bara á brjóstinu mest allan daginn þannig að ég heppinn slapp ansi vel frá undirbúningi og að vera að þjóna. En þetta var yndislegur dagur í alla staði nema hvað maður svitnar orðið í þessu raka veðri sem er hjá okkur. Hitinn er ekki lengur það versta heldur rakinn sem klístrar mann á öllum mögulegum og ómögulegu stöðum líkamans. Balthasar var líka glaður þegar hann loksins komst í bað í vaskinum til að þvo af sér klístrið. Nína sofnaði sæl og glöð eftir að hafa verið í buslulauginni í garðinum og kælt sig ansi hressilega. Hún var vissulega stór hluti af því að allt gekk upp hjá okkur en Waltraud og Claudia voru líka duglegar að hjálpa. Jæja best að fara í sturtu og hressa sig upp fyrir nóttina....

Guð blessi ykkur og þar til næst, ykkar Helga....

8 Comments:

Blogger Bippi said...

Til hamingju með daginn Alex minn!

10:44 f.h.  
Blogger Systa said...

Til hamingju með daginn Alex :)

12:02 e.h.  
Blogger Familie Eck said...

takk!!

10:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju elsku Alex(-:

Hann er æði litli gaurinn þið megið vera stolt af honum.
Helga ég ætla að heyra í þér í síma um verslunarmannahelgina þá er ég heima á Húsó.
Kv frá okkur Greta, Lúlli og co(-:

11:13 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk Greta mín, maður veit bara ekki hvernig hægt er að hafa samband við þig þarna á heilsuhælinu!!!
Hlakka til að heyra í þér.
Bestu kveðjur
Helga og co

11:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Here are some links that I believe will be interested

2:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Really amazing! Useful information. All the best.
»

10:18 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Greets to the webmaster of this wonderful site! Keep up the good work. Thanks.
»

5:36 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters