þriðjudagur, september 19, 2006

Bongóblíða

Við erum nú aldeilis heppin með þetta veður. ÉG held að við Íslendingar séum veðurnæmir. Ef það er gott veður þá er allt gott en ef veðrið er ekki gott hafa sumir allt á hornum sér. Ég held að það sé hægt að læra að vera ekki svona. Læra að stjórna hugsunum sínum, vera amk opinn fyrir því að við sjálf höfum mikið um það að segja hvernig okkur líður og hvað við látum hafa áhrif á líðan okkar.

Við vorum með góða gesti hjá okkur um helgina, Anna Sigga og dóttir hennar Hekla, þær stoppuðu stutt í þetta sinn, komu með lest frá Hamborg á föstud. og flugu frá Dusseldorf á sunnud. en það var síðasta flug LTU á milli Þýskalands og Íslands þetta sumarið. Það var yndislegt að hafa þær, bara verið að kjafta og rölta um, það var mikið að gerast í bænum hjá okkur um helgina en við létum það ekki hafa nokkur áhrif á okkur.

Alex fór svo aftur til FFM eftir nokkra daga stopp heima og kemur annað kvöld aftur, allt brjálað búið að vera hjá honum. Þannig að hann verður nokkra daga að safna kröftum, sofa, sofa og borða borða, og hjóla, hlaupa, synda, svona verður það hjá honum. Ég held að það sé mjög erfitt fyrir hann að vera lengi í burtu vegna barna sinna, það er auðveldara að fara frá einu barni og konu en tveimur börnum og konu....

Ég ætla að fara að prufa brjóstapumpu til að safna smá mjólk í frysti, það verður gaman að sjá hvernig það kemur út....

Svo er ég mjög ósátt við bílstólinn okkar, sem Balthasar er í þessa dagana, ég hef heyrt það á nokkrum stöðum að maður eigi ekki að nota þessa stóla séu þeir orðnir eitthvað ákveðið gamlir, það væri gaman að fá að heyra ykkar vitneskju á þessu sviði. Ég er ekki spennt fyrir því að keyra til Danmerkur í haustfríinu í ótraustum stól....

Lifið heil,,,,

15 Comments:

Blogger Bippi said...

Já, maður lætur verðið stundun stjórna sér, sérstaklega heima á Íslandinu góða, því þar er nú oftar skítaveður.

Nú er spurning Helga mín hvort að þú endir með frystinn fullan af mjólk;o)

8:29 f.h.  
Blogger Sigga said...

Flott hjá þér að fara að mjólka þig. Um að gera að komast eitthvað út annað slagið. En kann Balthasar að drekka pela?

Bílstólar eyðileggjast á 5 árum. Plastið í þeim verður stökkt og því eru þeir ekki taldir öruggir ef eitthvað kemur uppá ef þeir eru eldri en 5 ára.

12:38 e.h.  
Blogger Helga said...

góð spurning þetta með pelana, hvaða túttu mælir þú með? vonandi tekur hann pela....

góðar upplýs. í samb. við stólana... kannski maður skelli sér þá á nýjan :-)

já Heiðrún ég hætti samt ekki að kaupa kúamjólk, get ómögulega boðið öðrum fjölsk.meðl. upp á þessa annars næringarríku mjólk...., hehe

12:56 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Já ég held að þið ættuð endilega að athuga með bílstól. Heima er hægt að fá lánaða stóla hjá tryggingarfélögunum sem bílinn er tryggður hjá.
Er það ekki hægt í Þýskalandi?

Ef Balthasar tekur ekki pelann, getið þið (eða Alex)gefið honum af stút eða úr skeið, sumir gera þetta, þá er engin hætta á að þau missi áhuga á brjóstinu.

1:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahahahaha!
Hver vill ekki brjóstamjólk út á morgunkornið eða í kaffið :)
Það er búbót!

3:49 e.h.  
Blogger Helga said...

Hahahah....

Nei því miður er ekki hægt að fá lánaða stóla hjá tryggingarfyrirtækjum. Þannig að það er bara eitt í stöðunni, eða að fá lánaðan, ég ætla að kíkja á stólinn hjá Ingu B. sem drengirnir hennar tveir hafa setið í :-)

Keypti pela í dag, alveg að brjálast úr spenningi hvort hann taki þessu,,, allt að gerast :-)))

10:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Um að gera að ná þeim nógu snemma með pelann, áður en þau fá skoðun á því að láta ekki bjóða sér uppá eitthvað gerfi drasl. Passaðu bara að hitinn sé alveg á gráðunni, brjóstabörnin eru svo nákvæm á það.

1:45 f.h.  
Blogger Sigga said...

Jæja og hvernig gengur með pelann?
Það er mín reynsla að það skipti engu máli hvaða túttur eru notaðar. Ef þau vilja svona gúmmídrasl yfirleitt þá eru þau ekkert að spá í tegundina. En flestir hér eru hrifnir af Avent pelum sem eiga að vera "brjóstavænni".

3:25 f.h.  
Blogger Helga said...

Ég ætla að byrja að pumpa mig á morgun, fæ ekki pumpuna fyrr og svo er bara að prufa pelann um leið því ég stefni á útstáelsi á laugard.kvöld :-)

Keypti pela í gær, reyndar Nuk, en við fáum okkur Avent ef það gengur ekki. Nuk er sama og snuddurnar sem ganga stundum, en hann er líka fljótur að spýta þeim út úr sér ef út í það fer....

10:21 f.h.  
Blogger Helga said...

prufaði hana áðan og var ekki alveg að fatta þetta, komu samt um 30 ml þannig að gó helga gó.. ekki satt.

Bk
Helga

5:02 e.h.  
Blogger Bippi said...

Áfram Helga, áfram Helga!!,O)

5:40 e.h.  
Blogger Helga said...

Takk stelpur mínar, ég læt ykkur vita :-þ

9:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá hvað þú átt yndisleg börn! Finnst þér þú ekki rík? Það er einhvern veginn allt öðruvísi tilfinning að eiga tvö heldur en eitt. Stundum verð ég meyr af þakklæti þegar ég horfi á stelpurnar mínar tvær. Lífið er dásamlegt! :)
Knús frá Suðurgötugenginu (Siggu Dögg, Diljá og Co.)

9:42 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Bílstólarnir endast einmitt þetta 5-7 ár eins og fram hefur komið... Ég er nú ekki mjög sleipur í þýskunni en ég sá nokkra góða díla á www.kelkoo.de, www.amazon.de og www.ebay.de með því að leita að 'Kindersitze'. Muna bara að haka við Artikelzustand: Nur neue Artikel á Ebay ;)
Það er aldrei að vita nema að við gætum svo fengið stólinn lánaðann áður en hann rennur út! Nei, Karen er ekki ólétt... :þ

12:04 e.h.  
Blogger Helga said...

Fékk stól hjá góðri vinkonu, hann er fjögura ára, ætla að kaupa nýjan (9-18 kg...) eftir tæp þrjú kíló og getu til að sitja. Er mjög ánægð með stólinn.... Verð glöð að keyra til DK með prinsinn í þessum stól....

Jú Sigga, ótrúleg lukka sem maður fær að njóta í þessu lífi....

9:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters