mánudagur, september 11, 2006

Það er naumast

Að ég tek mér tíma til að skrifa hér nokkrar línur.

Það er svo mikið stuð hjá okkur að ég kemst bara ekki í að blogga, þá er nú mikið sagt!!!

Föstudagurinn var mjög skemmtilegur, Inga B. kom í morgunmat með yngri drengnum sínum og það var æðislegt að hitta hana aftur eftir ja, þriggja mánaðar pásu hjá okkur. Hún kom deginum áður en þau flugu til Íslands í júní í sumar. Eftir hádegi kom svo vinkona mín hér með dóttur sína og við áttum glaðan eftirmiðdag. Laugardagurinn var skemmtilegur með fatamarkaði og ég gerði ansi góð kaup, þetta er svona markaður þar sem fólk selur notuð föt, en það er ekki hver og einn með stand eins og þekkist víða heldur eru fötin merkt þeim sem skilar (með númeri) svo er öllu raðað eftir stærð, það voru líka barnavagnar, stólar á hjól, sængurföt, dót, hjól, og bara allt sem viðkemur börnum. Margt er vissulega ekki flott en það sem ég keypti er "merkjavara" (n.b. líka C&A, ég á við eitthvað sem ég þekki sem merki) og mjög vel með farið ef það hefur verið notað yfir höfuð. Mér finnst svo gaman að fara á þessa markaði, ég fer með vinkonu minni sem á stelpu sem er þriggja og hálfs og hún var að byrja að læra að hjóla, bara strax án hjálparadekkja, geri aðrir betur.... nema hvað á laugard. þá kom Þórunn rétt við á leiðinni heim því Balthasar var ákkúrat vakandi, bara til að sjá hann einu sinni vakandi!!! Svo drifum við Nína okkur í að þrífa bílinn, enda kominn tími til, orðinn frekar sjúskaður þessi bíll okkar... Á sunnud. var svo saumaklúbbur og það var rosa gaman að hitta skvísurnar, það er alltaf að þynnast þessi hópur, alveg merkilegt hvað allir eru að fara heim!! Og einhvern veginn virðast nýjir ekki koma í staðinn, amk. ekki eins og er! Í dag fór ég svo í morgunkaffi og svo var reiðtími hjá Nínu eftir hádegi.

Á morgun kemur svo Alex, það verður gaman að fá hann heim. Anna Sigga kemur svo til okkar í vikunni og verður í nokkra daga hjá okkur með Heklu dóttur sinni þannig að þið sjáið að það er nóg að gera á þessu heimili....

Það er svo frábært veður hjá okkur aftur núna, fór upp í 27,5 hjá okkur í dag og á að verða svipað á morgun. Strax orðið of gott veður sagði Nína þegar hún kom heim úr skólanum í dag, hún fór bara í hnésíðum buxum og peysu í skólann og það var of mikið þegar hún kom heim úr skólanum en á morgnana er enn frekar svalt þannig að það veitir ekki af því að fara varlega í síðsumarið!

Nú er allt á fullu í undirbúningi hjá Erlu hjúkku, hún er að fara að gifta sig um helgina, það er svoooo leiðinlegt að missa af svona merkisviðburðum, ég treysti á myndatöku vinkvennanna!

Páfi er í Þýskalandi um þessar mundir og það er á hverjum degi í fréttunum hvar hann var í heimsókn og sýndar myndir af þeim fjölmörgu sem koma til að hlýða á orð hans. Hann hefur fjallað nokkuð mikið um það að fólk hafi misst áhuga á trúnni og að við þurfum að gefa okkur smá tíma til að huga að trúnni. Ég trúi á guð og finnst það gott, ég el börnin mín upp við það að trúa og læt skíra þau. Hvort þau vilji fermast eða jafnvel segja sig úr kirkjunni þegar þau eru orðin eldri geta þau þá gert. Trúin veitir mér öryggi í lífinu, í hræðslu og óvissu og það finnst mér gott. Ég er ekki þannig að ég biðji daglega eða fari í kirkju oftar en á jólum og í skírn og giftingu. Ég er kannski tækifæristrúuð, trúi helst þegar ég tel það styrkja mig eða vera mér skjól.

Þegar ég var lítil stúlka fór ég oft í heimsókn til ömmu og afa þegar þau áttu heima á Melteig 7 á Akranesi, ég fór stundum með þeim í sund í Bjarnalaug á morgnana og einhvern sunnudaginn þegar það hljómuðu kirkjuklukkurnar þá fórum við afi að tala um kirkjuna og guðsþjónustu. Það voru aldrei margir í kirkju á Akranesi þessa dagana. Ég man hvað gladdi mig mest, það var að það kostaði ekkert í guðsþjónustu!!! Eftir þetta samtal fór ég nokkrum sinnum í messu á sunnudögum, ásamt Guðrúnu og tveimur öðrum Akurnesingum!!!! Skemmtileg minning finnst mér.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er yfirleitt alltaf gaman að fara á fatamarkaði. Það finnst mér alla vega. Maður getur oft rekist á eitthvað svakalega skemmtilegt sem vill svo vel til að er einmitt eitthvað sem enginn annar á. Ég veit ekki með þig en í svona litlu landi eins og Íslandi þar sem allir versla í Next, Kringlunni, Cosmo, Smáralind og þessum verslunum þá finnst mér alltaf jafn hallærislegt að hitta einhvern sem á alveg eins peysu eða eitthvað og ég.
Það setur mig alveg út af laginu og einhverra hluta vegna missi ég áhuga á að ganga í þeim fötum oftar!! Fyndið!

Ég hugsa að meirihluti Íslendinga séu svona tækifæristrúar. Þ.e. sækja ekki kirkju reglulega og biðja til guðs þegar eitthvað bjátar á, eða til þess að biðja um leiðsögn, eða bara til þess að biðja fyrir einhverju eða einhverjum. Mig minnir endilega að ég hafi séð einhvern þátt um það. Ég myndi segja það sama um mig :)

Góðar kveðjur héðan frá ísalandinu góða!
Þóra

12:21 f.h.  
Blogger Bippi said...

Mér finnst mjög þægilegt að vera í kirkju og þá sérstaklega ef að ekkert sérstakt er um að vera í krikjunni. Ég myndi helst vilja sitja ein inni í kirkjunni í mínum eigin hugleiðingum.

Mér finnast hefðir vera góðar en mér verður samt til þess hugsað af hverju fólk fer ekki í kirkju. Nú kostar kirkjan Ríkið óhemju mikið fjármagn og er þá ekki spurning um að aðlaga kirkjuna fólkinu svo að það komi til kirkju???

Verður ekki bara að fórna hefðunum til þess að almúginn njóti þess að fara í krikju??

Bara svona pæling;)

9:47 f.h.  
Blogger Helga said...

Góðar pælingar hjá ykkur stelpur. Já það er satt að ríkið borgar óhemju fjár fyrir kirkjurnar og enn í dag eru guðsþjónustur lítið sóttar. KAnnski ég verði bara prestur eftir allt saman!!! OG reyni að breyta þessari hefð?

10:34 f.h.  
Blogger Bippi said...

Já, mér líst vel á það....þá myndi ég pottþétt mæta!!! ;)

11:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Amma mín fór alla sunnudaga með mig í kirkju frá því að ég var 4 ára og ekkert í neinn sunnudagaskóla heldur bara í messu, ég dáist að litlu Karen að hafa setið kyrr og hlustað á freskinn eins og ég hélt að hann héti. Mér finnst rosalega gott að fara í kirkju og sérstaklega í kaþólskar kirkjur þar sem maður getur kveikt á kertum fyrir fólkinu sínu.

11:49 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters