föstudagur, september 08, 2006

Lífið og tilveran

Ég er svo hamingjusöm yfir því hvað ég er heppin í lífinu.

Ég á tvö yndisleg börn.
Ég á yndislegan eiginmann!
Ég á notarlegt heimili!
Ég er með góða menntun.
Ég á í mig og á.
Ég á frábæra fjölskyldu og vini og nágranna.
Svona gæti ég haldið nokkuð áfram, en það eru svo margir sem eru líka svona heppnir
en sjá það bara ekki vegna áhyggja og vandamála sem þeir eiga við að etja. Það þykir mér leitt og mér þykir líka leitt hvað það eru margir í heiminum sem eiga hvorki í sig né á og lifa í hungursneyð eða við stríð. Við þurfum ekki að horfa lengra en til fjölskyldu eða vina eða janfvel höfum við sjálf upplifað mikla sorg og mikinn missi en það á ekki að stöðva okkur í því að vera hamingjusöm yfir því sem við eigum og höfum. Ekki halda að ég sé eigingjörn umfram eðlilegt heilbrigði, það er bara svo hollt að horfa jákvætt á hlutina. Við eigum frekar að nota umfram orku til að hjálpa öðrum, kannski þeim sem eiga sárt um að binda. Ég gleðst yfir litlum hlutum sem eru kannski mjög ómerkilegir í annara augum og er stolt af því.

Stundum hugsa ég til þess að það var á tímabili í lífi mínu hársbreydd frá því að ég hefði misst mömmu, þá var ég 24 ára, þá hefði ég hvorki átt mömmu né pabba á lífi. Ég er svo heppin að eiga mömmu á lífi, þessa lífsglöðu og jákvæðu konu sem dreif sig í nám til Danmerkur.

Lífið er dásamlegt (eiginlega setning sem mamma segir alltaf, en á mjög vel við hér)

Þessa dagana er mér mjög hugsað til stúlkunnar sem kemur frá nágrenni Vínar sem var haldið fanga í 8 ár. Það var viðtal við hana um daginn og það var stórkostlegt að sjá hvernig hún sagði frá og hvaða lífssýn hún hefur. Örugglega hrikaleg lífsreynsla sem hún gekk í gegnum og án efa á þetta eftir að verða erfitt fyrir hana, að vinna úr lífsreynslunni. En hennar sýn og hennar styrkur, snertir strengi í mér sem fá mig til umhugsunar. Njótið lífssins og ekki eyða of mikilli orku í smáatriðin sem fara í taugarnar á ykkur!

Eigið góða helgi

p.s. eplakaka er góð hugmynd, nota eplin úr garðinum

5 Comments:

Blogger Rokkarinn said...

Dásamlegt og bjúddífúl er kannski meira eftir mömmu... þó svo að inntakið sé að vísu það sama :)

3:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fallegt :)
Það gerir öllum gott að hugleiða hversu ríkur maður er í raun, ég þakka mest fyrir að vera heil heilsu og vera umkringd fólki sem ég elska og elskar mig á móti.

3:58 e.h.  
Blogger Bippi said...

Frábær hugleiðing hjá þér Helga. Maður hefur gott af því við og við að minna sig á hvað maður er hamingjusamur og heppinn í lífinu.....

4:32 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Góðir punktar Helga mín, hvað meinar þú Óli, meira eftir mömmu...???

Það styttist í að þú fáir bóndann heim Helga, vonandi fer hann ekki oftar í burtu í svo langan tíma í senn.

Góða helgi!

2:13 e.h.  
Blogger Silja said...

góð hugsun Helga mín. Maður þarf stundum verulega áminningu um að vera hamingjusamur með allt það góða sem maður hefur. Þú ert svo jákvæð og ég hef yndi af að lesa bloggið þitt. Vonandi var/er eplakakan góð. Nammi namm

9:08 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters